Staðlamál
12.10.2009
Tækniforskrift fyrir einfaldan rafrænan reikning - TS 135
Þann 14. október gefur Staðlaráð út tækniforskriftina TS-135 Einfaldur rafrænn reikningur – NES umgjörð 4. Sama dag verður opnaður nýr vefhluti um rafræn viðskipti á vef upplýsinga-samfélagsins ut.is. Þessi atburður er mikilvægur áfangi í mótun grunngerðar fyrir rafræn viðskipti á Íslandi sem byggir á miðlun upplýsinga um Internetið.


12.10.2009
Helstu verkefni Byggingarstaðlaráðs BSTR

Á vegum Byggingarstaðlaráðs (BSTR) er um þessar mundir unnið að átta séríslenskum staðlaverkefnum. Hvert verkefni er unnið af hópi sérfræðinga og ráðgjafa sem hittast að jafnaði á tveggja vikna fresti. Ætla má að liðlega 40 sérfræðingar og ráðgjafar sinni þessari vinnu.
12.10.2009
Alþjóðlegi staðladagurinn -Orka, umhverfi og staðlar

Alþjóðlegi staðladagurinn er 14. október ár hvert. Að þessu sinni er hann helgaður loftslagsbreytingum og vakin er athygli á hvernig staðlar geta komið að gagni í baráttunni gegn þeim.
Staðlar koma m.a. að gagni
- við að mæla og fylgjast með losun gróðurhúsalofttegunda,
- við hönnun og smíði orkusparandi bygginga, búnaðar og tækja,
- við stjórnun orkunotkunar og orkunýtni.
12.10.2009
Alþjóðlegur staðall um samfélagslega ábyrgð - ISO 26000

Væntanlegur er staðall um sam-félagslega ábyrgð. Fram til 14. febrúar á næsta ári geta aðildarlönd að Alþjóðlegu staðlasamtökunum, ISO, gert athuga-semdir við frumvarpið að nefndum staðli. Þar með talið Ísland. Verði frumvarpið samþykkt, þá verður staðallinn – líkt og aðrir staðlar - til frjálsra afnota. Fyrirtæki og stofnanir sem sjá sér hag í að nota staðalinn gera það sem sagt af fúsum og frjálsum vilja.
1.4.2009
Ný útgáfa - ISO 9001:2008 í íslenskri þýðingu

Ég beið í eftirvæntingu eftir nýrri útgáfu af ISO 9001. Fréttirnar af breytingunum bentu til að tekið yrði á mikilvægum atriðum. Meiri áhersla yrði lögð á forystu og ábyrgð stjórnenda. Skýrari umfjöllun yrði sett fram um útvistaða starfsemi. Lagfæringar yrðu gerðar á nokkrum stöðum sem voru til óþæginda. Það átti ekki að breyta líkaninu sem rammar inn staðalinn.
1.4.2009
TS 151 - Tæknireglur um fjarskipta-lagnir í íbúðarhúsnæði

Í byggingareglugerð er engar reglur að finna um fjarskiptalagnir. Þar af leiðandi hafa hönnuðir og seljendur fjarskiptalagna ekki haft staðlaðar kröfur til að vinna eftir og húseigendur ekki haft tæknilegt viðmið í viðskiptum sínum. Tæknisforskriftin TS 151:2009 kemur því til móts við brýna þörf.
1.4.2009
Jöfn laun - Jafnlaunavottun mun marka tímamót
Á degi Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári, 24. október, sem hér er í minnum hafður fyrir kvennafrídaginn á sínum tíma, var brotið í blað í sögu baráttunnar fyrir launajafnrétti kynjanna hér á landi. Þá undirrituðu félags- og tryggingamála-ráðherra, forseti Alþýðusambands Íslands og aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sameiginlegt erindi til Staðlaráðs um gerð staðals um launajafnrétti og jafna möguleika kynjanna til starfa og starfsþróunar. Erindið grundvallast á bráðabirgða-ákvæði nýrra jafnréttislaga sem Alþingi samþykkti í febrúar 2008 og sameigin-legri jafnréttisbókun ASÍ og SA í tengsl-um við gerð kjarasamninga um sama leyti. Bráðabirgðaákvæðið setur verk-efninu bjartsýnan tímaramma, því þar er kveðið á um að verkinu skuli lokið fyrir árslok 2009.
1.4.2009
Viðskipti - Rafrænir reikningar

Fagstaðlaráð í upplýsingatækni, FUT, setti sér í upphafi árs 2008 það metnaðarfulla markmið að skilgreina íslenska grunngerð rafrænna viðskipta. Stofnaður var vinnuhópur sem í eru fulltrúar atvinnulífs og ríkisins. Vinnuhópurinn hefur síðustu mánuði unnið að mótun innleiðingaráætlunar og komið á fót póstlista og opnum vettvangi á slóðinni http://thing.simnet.is.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












