Staðlamál
15.10.2007
Staðlar létta þér lífið...
... þegar þú metur gæði póstþjónustunnar 
Staðallinn ÍST EN 14508:2003 2007 Póstþjónusta - Þjónustugæði - Mæling á flutningstíma frá póstlagningu til móttöku fyrir stakar B-póstsendingar og A-póstsendingar er einn margra staðla sem snúast um gæði póstþjónustu.
15.10.2007
ÍST 120 - Íslenskur staðall um landupplýsingar

Þann 1. júní 2007 kom út fyrsti séríslenski staðallinn á sviði landupplýsinga, ÍST 120:2007 Skráning og flokkun landupplýsinga - Fitjuskrá. Markmiðið með útgáfu staðalsins er að koma á samræmdri flokkun gagna í íslenskum landupplýsingakerfum.
15.10.2007
Reynslusaga - Blóðbankinn og ISO 9001

Blóðbankinn hefur verið með vottað gæðakerfi skv. ISO 9001 síðan árið 2000. Uppbygging gæðakerfisins hófst upp úr 1995 en þá urðu miklar breytingar í starfsemi Blóðbankans því verið var að innleiða nýtt tölvukerfi og nýjar aðferðir. Vinnuleiðbeiningar voru skrifaðar niður og var þar með kominn fyrsti grunnur að gæðahandbók. Í kjölfarið var ákveðið að byggja upp gæðakerfi til að styrkja innviði Blóðbankans og stuðst var við ISO 9001 staðalinn. Til að setja vinnuna við uppbyggingu gæðakerfisins í ákveðnari farveg var tekin sú ákvörðun að sækja um vottun á kerfinu.
15.10.2007
Staðlaráð tvítugt ... eða þannig - Brot úr sögu Staðlaráðs

Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá upphafi formlegs staðlastarfs á Íslandi. Það var á haustdögum 1987 sem Staðlaráð Íslands var sett á laggirnar sem ráðgjafarnefnd á vegum stjórnar Iðntæknistofnunar Íslands, en eitt af hlutverkum Iðntæknistofnunar skv. lögum var að vinna að stöðlun. Á fundi þann 8. september 1987 voru starfsreglur Staðlaráðs samþykktar og formaður þess kjörinn Þorbjörn Karlsson prófessor, fulltrúi Háskóla Íslands. Í Staðlaráði áttu í fyrstu sæti fulltrúar Iðntæknistofnunar, iðnaðarráðuneytisins, Háskóla Íslands, Landssambands iðnaðarmanna og Félags íslenskra iðnrekenda. Fljótlega bættust síðan Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Íslands í hópinn.
15.10.2007
Afmælisbarnið - ISO 9001 tvítugur
Tuttugu ár eru síðan gæðastjórnunarstaðallinn ISO 9001 kom fyrst út. Íslenska útgáfa staðalsins gengur nú undir nafninu ÍST EN ISO 9001:2000 Gæðastjórnunarkerfi - Kröfur. Í tilefni tvítugsafmælisins ætlar Staðlaráð að gefa út á íslensku bókina ISO 9001:2000 - Vinnubók fyrir þjónustufyrirtæki. Bókinni er ætlað að auðvelda fyrirtækjum að ákveða hvort og hvernig innleiða megi gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001. Ef fólk vill frétta af útkomu bókarinnar um leið og af henni verður má fara inn á www.stadlar.is og gerast áskrifandi að Staðlapóstinum - rafrænu fréttabréfi Staðlaráðs. Í tilefni tvítugsafmælisins mun Staðlaráð einnig gefa helmingsafslátt af bók sem inniheldur kjarnastaðlana fjóra í 9000-seríunni. Afslátturinn gildir út árið 2007.
4.5.2007
Staðlar létta þér lífið...
... þegar þú leikur þér í hoppukastala 
Staðallinn ÍST EN 14960:2007 Inflatable play equipment - Safety requirements and test methods er einn fjölmargra íslenskra staðla sem hafa það að markmiði að auka öryggi leiktækja.
4.5.2007
Alþjóðleg nefnd um fiskvinnslu, veiðar og eldi - Spurt um áhuga íslenskra hagsmunaaðila

Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO hafa nýlega stofnað tækninefndina ISO/TC 234 Fisheries and aquaculture, sem á að semja staðla á sviði fiskveiða, fiskvinnslu og fiskeldis. Þetta var gert að frumkvæði Norðmanna sem hafa tekið að sér að stýra vinnunni. Íslendingar taka virkan þátt í nefndinni.
4.5.2007
Kynjastaðall - Staðall til að uppræta kynbundið launamisrétti

Í lok síðasta árs tóku Ný-Sjálendingar forystu í staðlaheiminum. Þeir urðu fyrstir til að gefa út staðal sem miðar að því að tryggja starfsmönnum sanngjörn laun og sambærileg tækifæri í starfi - óháð kyni. Staðallinn heitir fullu nafni NZS 8007:2006 Gender-inclusive Job Evaluation.
4.5.2007
Reynsla Teris af stjórnkerfi upplýsingaöryggis - ÍST ISO/IEC 17799 og ÍST ISO/IEC 27001
Forveri Teris, Tölvumiðstöð sparisjóðanna, var stofnaður í mars 1989. Í upphafi þjónaði
Tölvumiðstöðin eingöngu hlutverki tölvudeildar sparisjóðanna. Smám saman fjölgaði eigendum og viðskiptavinum og í dag gegnir Teris mikilvægu hlutverki sem upplýsingatæknisvið margra fyrirtækja auk allra sparisjóða landsins. Árið 2002 var mörkuð stefna þar sem ákveðið var að bjóða lausnir fyrirtækisins út fyrir eigendahópinn. Stjórnendum fyrirtækisins var ljóst mikilvægi þess að stjórna upplýsingaöryggi til að tryggja gögn og upplýsingar fyrirtækisins og viðskiptavina. Því var ákveðið að innleiða stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt staðli sem nú heitir ÍST ISO/IEC 27001.
4.5.2007
Staðráðin í að gera betur - Viðhorfskönnun meðal viðskiptavina Staðlaráðs
Staðlaráð fékk fyrirtækið Lausnir ehf. til þess að gera viðhorfskönnun meðal viðskiptavina sinna.
Niðurstaðan var í meginatriðum mjög jákvæð en líka komu fram atriði sem gefa tilefni til þess að gera betur. Starfsfólk Staðlaráðs er staðráðið í því en hér á eftir fer samantekt skýrslunnar frá Lausnum.
5.2.2007
Staðlar létta þér lífið...
... þegar þú leikur handbolta 
Staðallinn ÍST EN 749 Playing field equipment - Handball goals - Functional and safety requirements, test methods er einn fjölmargra íslenskra staðla fyrir íþróttir.
5.2.2007
Aðild að Staðlaráði - Góð hugmynd
Staðlaráð Íslands, er sjálfstæð samtök hagsmunaaðila, starfar samkvæmt lögum nr. 36/2003 og
hefur það hlutverk að staðfesta alþjóðlega staðla og annast gerð íslenskra staðla. Staðlaráð Íslands á aðild að alþjóðasamstarfi staðlaráða fyrir Íslands hönd og fer með atkvæði landsins á þeim vettvangi. Staðlaráð starfrækir fagstaðlaráð á þrem fagsviðum: Byggingarstaðlaráð, Rafstaðlaráð og Fagstaðlaráð í upplýsingatækni. Aðilar að Staðlaráði eru nú um 70 talsins: fyrirtæki, stofnanir, samtök og ráðuneyti.
5.2.2007
Lýsing á vegum - CEN/TR 13201-1: Val á lýsingarflokkum
Með þessari stuttu grein viljum við vekja sérstaka athygli á tækniskýrslu CEN/TR 13201-1 um val á lýsingarflokkum fyrir vegi sem nú kemur út í íslenskri þýðingu. 

5.2.2007
Örugg fasteignaviðskipti - ÍST 51 Byggingarstig húsa
Í fréttum undanfarið hefur mikið verið fjallað um frágang húsbygginga og ýmislegt sem er áfátt í þeim efnum. Það gefur tilefni til að minna enn og aftur á staðalinn ÍST 51 Byggingarstig húsa. ALLIR sem kaupa eða selja nýtt eða ófullbúið eða endurnýjað húsnæði ættu að nota staðalinn og vísa til hans í samningum.
5.2.2007
Upplýsingaveita um CE-merkingar á byggingavörum - www.si.is/ce
Þó að á Íslandi hafi um alllangt skeið mátt finna ýmsan fróðleik og upplýsingar varðandi CE-
merkingar á byggingavörum og innri markaði ESB er óhætt að fullyrða að þar hafi oftast verið um almennan fróðleik að ræða. Þess vegna tóku Samtök iðnaðarins því fagnandi þegar danska Iðntæknistofnunin gaf þeim leyfi til að þýða frábæran upplýsingavef sem er hannaður sérstaklega fyrir byggingavöruframleiðendur og birgja vegna CE-merkinga á byggingavörum.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













