Staðlamál
14.10.2004
ISO inn á nýtt svið - Samfélagsábyrgð fyrirtækja
Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO hafa tekist á hendur gerð leiðbeinandistaðals um samfélagsábyrgð fyrirtækja.Markmiðið er að búa til almennar leiðbeiningarum þetta efni á skýru og einföldu máli. Væntanlegur staðall snertir gamalkunnug málefni sem enginn getur með réttu horft framhjá. Með gerð hans er ISO hins vegar, að margra mati, að fara inn á nýtt svið, en samtökin hafa hingað til fyrst og fremst látið sig varða hinar verklegu og tæknilegu hliðar mannlífsins. Aðrir segja sem svo að siðferðileg álitaefni verði ekki skilin frá verklegum og tæknilegum þáttum, síst á tímum alþjóðavæðingar. Áhrif fyrirtækja eru ekki aðeins hagfræðileg heldur einnig landfræðileg,félagsleg og pólitísk. Því sé þetta eðlilegt skref í þróun alþjóðlegrar stöðlunar.
14.10.2004
Faggildingar krafist - Aðalskoðun leiksvæða og leikvallatækja
Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að eftir 1. janúar á næsta ári megi þeir einir framkvæma aðalskoðun leiksvæða sem hlotið hafa til þess faggildingu. Við framkvæmd slíkrar skoðunar koma leikvallastaðlar mjög við sögu, að sjálfsögðu. Leikvallastaðlarnir eru að sjálfsögðu nauðsynlegir fyrir þá sem ætla að verða sér út um faggildingu fyrir aðalskoðun leikvalla, en einnig ómissandi fyrir byggingarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, stjórnendur grunnskóla og leikskóla og aðra sem koma að hönnun, uppsetningu, prófunum eða viðhaldi og rekstri leiksvæða eða leiktækja. Í ritinu er að finna staðla úr ÍST EN 1176 röðinni Leikvallatæki að viðbættum ÍST EN 1177 ? Yfirborðsefni á leiksvæðum, öryggiskröfur og aðferðir við prófun.
14.10.2004
ISO 10002 - Að bregðast skipulega við kvörtunum
Í nýjum leiðbeinandi staðall frá ISO eru útlistaðar lausnir sem miða að því að sætta óánægða viðskiptavini. Lausnirnar snúast um að taka skipulega á kvörtunum viðskiptavina vegna óánægju þeirra með vöru eða þjónustu þannig að það verði bæði þeim og fyrirtækinu eða stofnuninni til hagsbóta.
14.10.2004
Útskýring - Örfá orð um vottun
Í daglegu tali er stundum sagt að hitt eða þetta sé vottað. Menn hafa ýmsar hugmyndir um hvað vottun sé og stundum eru þær hugmyndir byggðar á misskilningi eða lítilli þekkingu.Til er tvenns konar vottun. Þá fyrri geta viðskiptavinir fyrirtækisins séð um, en um síðari tegundina sér sjálfstæður og óháður aðili. Yfirlitið sem hér fer á eftir er örstutt útskýring á þeirri vottun sem venjulega er í höndum sjálfstæðs þriðja aðila.
14.10.2004
Í fyrsta skipti - Ísland í stjórn ISO
Á aðalfundi Alþjóðastaðlasamtakanna, ISO, í Genf um miðjan september var kosið um sex sæti af 18 í aðalstjórn ISO (ISO Council). Fimm stærstu aðildarlönd ISO eiga ávallt fast sæti í stjórninni, en kosið er um hin 13 sætin eftir ákveðnum reglum þar sem löndin eru flokkuð í þrjá hópa eftir efnahagslegu mikilvægi og þátttöku í staðlastarfi ISO. Tveir hópanna eiga fimm sæti hvor en þriðji hópurinn, með um 100 aðildarlöndum, á aðeins þrjú sæti. Í þessum hópi eru flest þróunarlöndin, en einnig minnstu Evrópulöndin. Að þessu sinni voru tvö sæti laus í þessum hópi. Ísland og Jórdanía voru sjálfkjörin, þar sem fleiri lönd buðu sig ekki fram. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur sæti í aðalstjórn ISO og mun Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, verða fulltrúi í aðalstjórninni næstu tvö árin, 2005 - 2006.
18.5.2004
Þjóðlegur staðall - ÍST 130 Upplýsingatækni - íslenskar kröfur
Hönnuðir íslenskra upplýsingakerfa verða að geta sett fram íslenskar hönnunarforsendur. Forsenda þess er að hafa íslenskar kröfur í upplýsingatækni á hreinu. Þær er að finna í staðlinum ÍST 130 Upplýsingatækni ? íslenskar kröfur.
18.5.2004
Athugasemdir óskast Frumvörp að stöðlum um skjalastjórn
Tvö ný frumvörp að stöðlum um skjalastjórn hafa verið auglýst til umsagnar í Staðlatíðindum á vef Staðlaráðs, www.stadlar.is. Frumvörpin eru íslensk þýðing á staðlinum ISO 15489-1 Upplýsingar og skjalfesting ? skjalastjórn. 1. hluti: Almenn atriði, og tækniskýrslunni ISO/TR 15489-2 Upplýsingar og skjalfesting ? skjalastjórn. 2. hluti: Leiðbeiningar.
18.5.2004
Þjónusta - Staðlar út yfir gröf og dauða
?Það verður ekki þverfótað fyrir stöðlum?, segja sumir og stynja þungan. Þeir tengja staðla gjarna við skrifræði og aðför að skapandi hugsun. ?Það á að steypa alla í sama mót?, segja þeir, og beina ásakandi fingri til Brussel. Þeir sem vita betur vita, að án staðla væri mun erfiðara að fóta sig og tíminn sem ætti að verja í að skapa, færi í að leysa sömu vandamálin aftur og aftur. Betra er að leysa þau í eitt skipti fyrir öll með stöðlum. Það væri til dæmis tímafrekt og leiðinlegt að mixa ljósaperu í fatningu í hvert sinn sem skipt væri um peru; tálga rafhlöðu í vasaljós; læra ný umferðarmerki þegar ekið væri í nýju landi; ráða í ólíkar meðferðarmerkingar fyrir fatnað. Og fáir hafa gaman af því ?sköpunarstarfi? að leita uppi straumbreyta og klær í útlöndum til að koma hárþurrkunni eða tölvunni í samband, en á því sviði vantar einmitt víðtækari staðla. Þeir sem vita betur vita líka að Evrópusambandið býr ekki til neina staðla. Það gera aðeins þeir sem hafa hagsmuni af því að nota staðlana. Staðlarnir eru svo til frjálsra afnota fyrir alla.
18.5.2004
ISO/IEC 90003 - Verkfæri fyrir gæðaumbætur
?ISO/IEC 90003 tiltekur bestu aðferðir sem hlotið hafa alþjóðlega viðurkenningu. Staðallinn kemur öllum hugbúnaðarfyrirtækjum að gagni. Litlu máli skiptir á hvaða stigi fyrirtækin eru þegar þau byrja. Aðalmálið er að þau ætli sér sannarlega að bæta gæðin.? Þetta segir Victoria Hailey, sem verkstýrði alþjóðlegum hópi sérfræðinga við gerð staðalsins ISO/IEC 90003:2004, Softwareengineering ? Guidelines for the application of ISO 9001:2000 to computer software. Staðallinn tekur til allra verkþátta við gerð tölvuhugbúnaðar, frá þróun til sölu, afhendingu, starfrækslu og viðhalds.
18.5.2004
Tilraunasamfélag - Stuðningur ríkisstjórnarinnar
Á ríkisstjórnarfundi 27. apríl síðastliðinn samþykkti ríkisstjórn Íslands, að tillögu iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis, að styðja áfram við verkefnið ?Ísland ? tilraunasamfélag fyrir rafræn viðskipti?. Með því er tryggt að verkefnið haldi áfram að þróast og að Íslendingar haldi því frumkvæði sem þeir hafa haft í verkefninu.
1.3.2004
Staðlar gegn streitu
Í tímaritinu ISO Management Systems er því haldið fram að vinnuálag sé að aukast. Stressið grasserar í öllum greinum atvinnulífsins. Líkt og dauðinn sjálfur nær það jafnt til þeirra sem stjórna fyrirtækjunum og hinna sem vinna á gólfinu. Stressinu fylgja stórkostleg heilsufarsvandamál. Má þar nefna spennu, kvíða, þunglyndi, háls- og bakverk, hjartaslag, sykursýki og magasár. Það er óþarfi að halda upptalningunni áfram. Málið er grafalvarlegt. Auk þess er almennt viðurkennt að stressandi vinnuumhverfi leiðir til aukinnar fjarveru starfsfólks og hærri starfsmannaveltu, en hvort tveggja veldur minni skilvirkni og lakari framleiðni.
1.3.2004
Hönnun rafkerfa og Sjálfvirk innbrotaviðvörunarkerfi
Tvær handbækur frá Rafstaðlaráði (RST) eru fáanlegar á vefslóðinni www.stadlar.is/rst, Hönnun rafkerfa og Sjálfvirk innbrotaviðvörunarkerfi. Handbækurnar nýtast öllu fagfólki, hvor á sínu sviði. Sú fyrrnefnda þeim sem hanna rafkerfi og vinna eftir rafteikningum og sú síðarnefnda þeim sem koma að hönnun, uppsetningu og viðhaldi sjálfvirkra innbrotaviðvörunarkerfa.
1.3.2004
Næstu námskeið - ISO 9000 og ISO 17799
Staðlaráð býður almenn námskeið og sérnámskeið fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki. Nánari upplýsingar og skráning á www.stadlar.is
1.3.2004
Gæðastjórnun í menntun og fræðslu
Starfshópur á vegum Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO hefur sett saman leiðbeiningar um gæðastjórnun fyrir menntastofnanir og fyrirtæki sem sinna fræðslu. Leiðbeiningunum er ætlað að auðvelda þeim að notfæra sér gæðastjórnunarstaðalinn ÍST EN ISO 9001 Gæðastjórnunarkerfi ? Kröfur.
1.3.2004
Upplýsingavefir á stadlar.is
Á stadlar.is er ekki aðeins hægt að panta staðla og handbækur og skrá sig á námskeið. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um efni tengd stöðlum. Orðið Upplýsingavefir er ekki lýsandi sem krækja á vefsíðu, en það er úr vöndu að ráða þegar maður hefur safnað saman margskonar upplýsingum á einn stað. Ef einhver fær hugmynd að nýju nafni á þessa krækju á vef Staðlaráðs, þá myndum við gjarnan vilja heyra. Undir krækjunni er að finna upplýsingar sem allar eru mjög gagnlegar þótt þær heyri ekki endilega saman.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












