Beint á leiðarkerfi vefsins

Staðlamál

14.10.2002

- ÍST 150 Fjöldi og staðsetning tengla í íbúðarhúsnæði

Rafstaðlaráð lauk nýlega við gerð staðalsins ÍST 150:2002 Raf- og boðlagnir fyrir íbúðarhúsnæði: Gerð, staðsetning og fjöldi tengistaða, sem gefinn var út og staðfestur af Staðlaráði 1. október. Staðallinn tiltekur lágmarksfjölda og staðsetninu tengla fyrir raf- og boðskiptalagnir í íbúðarhúsnæði. Staðallinn segir einnig til um lagnaleiðir og lágmarksstærðir tengikassa og röra fyrir lagnakerfi.

14.10.2002

Alþjóðlegi staðladagurinn 14. október Hvaða gagn er að stöðlum

Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Þegar ég tilkynnti heima hjá mér 14. október í fyrra að þessi dagur væri alþjóðlegi staðladagurinn, þá sagði ein dóttir mín í svona frekar hortugum tón: ?Só? Og hvernig ætlarðu svosem að halda upp á daginn? Kannski með því að fara út í búð og kaupa batterí?? Ég varð hálf hvumsa við en áttaði mig svo á því að þannig hafði ég einmitt reynt að útskýra fyrir dætrunum hvað staðlar væru og hvaða gagn þeir gerðu ? að þegar vantaðiný batterí í Game Boy-tölvuleikinn þá væri hægt að kaupa þau í næstu búð, þótt svo tölvuleikurinn hefði verið keyptur í Belgíu en batteríin framleidd í Japan eða Singapúr, og að ástæðan fyrir því að þetta passaði saman væru alþjóðlegir staðlar.

20.9.2002

Heilsusamlegur staðall Réttu sólgleraugun fyrir veturinn

Þótt haust gangi í garð er ekki ástæða til annars en bjartsýni. Einhverntíma styttir upp og þrátt fyrir að sól lækki á lofti eru framundan sólríkir vetrardagar, sumir snjóhvítir með skjannabirtu. Þá koma sólgleraugu í góðar þarfir ? þó ekki öll sólgleraugu.

20.9.2002

HACCP og nýr íslenskur staðall Fyrir alla sem höndla með matvæli

Fyrir tilstuðlan Samtaka iðnaðarins ákvað Staðlaráð Íslands, að höfðu samráði við hagsmunaðila, að gefa út íslenska þýðingu á dönskum staðli sem er notaður í tengslum við vöruþróun og framleiðsluí matvælafyrirtækjum og svokallað HACCPkerfi. Staðalinn nýtist öllum gerðum matvælafyrirtækja, að meðtöldum dreifingaraðilum og flutningafyrirtækjum, þeim sem selja umbúðir, búnað, hráefni og annað sem tengist meðhöndlun matvæla. Staðallinn heitir ÍST DS 3027:1997 Öryggi matvæla samkvæmt HACCP (greining hættu og mikilvægra stýristaða) ? Kröfur til matvælaframleiðenda og undirverktaka þeirra.

20.9.2002

Nýtt efni - Þetta er allt að koma

Hjá Staðlaráði er stöðugt unnið að útgáfuverkefnum í samvinnu við fagráð, fagstjórnir og aðra sem hafa áhuga á og hagsmuna að gæta í staðlamálum.

20.9.2002

Tímarit um gæða- og umhverfisstjórnun

Nýtt tímarit Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO um gæða- og umhverfisstjórnun er ómissandi öllum sem hafa áhuga á gæðastjórnun samkvæmt ISO 9001 eða umhverfisstjórnun samkvæmt ISO 14001.

20.9.2002

Góðir gestir Svona gera smáþjóðir

Í maímánuði sl. voru góðir gestir í heimsókn hjá Staðlaráði Íslands. Þar var um að ræða þriggja manna sendinefnd frá eistnesku staðlastofnuninni, EVS ? framkvæmdastjórinn Sven Kasemaa, yfirmaður staðlasviðs Raul Juhanson og yfirmaður sölu- og upplýsingasviðs, Kristel Schwede.

20.9.2002

Nýr staðall - ÍST 69 Umreikningur á varmagjöf ofna

Mikilvægt er að samræmdar reglur gildi um umreikning á varmagjöf ofna frá prófuðum staðalstærðum yfir í raunstærðir. Þannig sitja allir aðilar á markaði við sama borð og auðvelt er að bera saman ofna frá mismunandi framleiðendum.

20.9.2002

Næstu námskeið Staðlaráðs - ISO 9000 og ISO 17799

Staðlaráð býður almenn námskeið og sérnámskeið fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki.

10.6.2002

Staðlar og tónlist heyra saman - Do Re Mi Fa ...

Tónlistin þekkir engin landamæri. Annað alþjóðlegt fyrirbæri eru staðlar. Það er vegna þessa skyldleika sem ISO 15707, nýr alþjóðlegur staðall, hefur litið dagsins ljós. Á tímum tölvuvæddra gagnagrunna og Netsins, gæti hann valdið straumhvörfum í viðskiptum með tónverk.

10.6.2002

Námskeið um ISO 17799 - Stjórnun upplýsingaöryggis

Ásíðustu vikum hefur Staðlaráð haldið úti námskeiði undir heitinu ?Örugg meðferð upplýsinga ? Stjórnun upplýsingaöryggis samkvæmt ISO 17799?. Þrjú námskeið hafa þegar verið haldin, þar af eitt sérnámskeið fyrir Landsvirkjun, og stefnt er að því að taka upp þráðinn að nýju í haust.

10.6.2002

Brot úr ársskýrslu - Aðalfundur Staðlaráðs

Aðalfundur Staðlaráðs Íslands var haldinn 23. maí síðastliðinn. Hér á eftir getur að líta brot úr ársskýrslu fyrir árið 2001.

10.6.2002

Panta íslenska staðla - Öruggara á netinu

Staðlaráð vinnur stöðugt að því aðgera viðskiptavinum sínum auðveldar fyrir að nálgast staðla, en þar kemur netið að sjálfsögðum mjög við sögu. Að panta staðla af heimasíðu Staðlaráðs, www. stadlar.is, er í senn einfalt og tryggir best að pantanir komist til skila.

10.6.2002

Raftæknitákn í gagnabrunni - Rafteikningar

Viðskiptavinum Staðlaráðs býðst að gerast áskrifendur að raftæknitáknum gegnum Netið og nota táknin í teikningar sínar.

10.6.2002

Fyrir byggingariðnað - Þolhönnunarstaðlar

Byggingarstaðlaráð (BSTR) hefur í samvinnu við fjölmarga hagsmunaaðila í byggingariðnaði unnið að gerð sérákvæða við nýju dönsku þolhönnunarstaðlana og gerð þjóðarskjala við evrópsku forstaðlana um þolhönnun, svokallaða ?Eurocodes?.Fólk í íslenskum byggingariðnaði þarf að huga að afrakstri þessa viðamikla starfs, nýjum stöðlum ásamt sérákvæðum og þjóðarskjölum sem taka gildi nú þann 1. júlí.

10.6.2002

Staðlar fyrir börn - Leikvallastaðlarnir

Leikvallastaðlarnir ÍST EN 1166 og ÍST EN 1177 eru fyrir börn, en líka byggingarfulltrúa sveitarfélaga, verktaka, stjórnendur grunnskóla og leikskóla, foreldrafélög, áhugafólk um öryggi barna og aðra sem koma að uppsetningu eða viðhaldi og rekstri leiktækja.

19.2.2002

Staðlabúðin - Pantið staðla á www.stadlar.is

Í staðlabúðinni má meðal annars finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum. Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

19.2.2002

Ódýrir og verðmætir - Staðlar borga sig

Þeir sem nota staðla eru yfirleitt ekki í vafa um gagnsemi þeirra, líta á staðla sem verkfæri og kvarta sjaldnast undan verðinu. Staðlaráð býður enda viðskiptavinum sínum hagstæðari kjör en staðlastofnanir þeirra landa sem við gjarna miðum okkur við. Verð á stöðlum á Íslandi er yfirleitt alltaf lægra og oft miklu lægra í slíkum samanburði.

19.2.2002

Námskeið Staðlaráðs - ISO 9000, vélar og lækningatæki

Námskeið Staðlaráðs hafa hlotið frábærar undirtektir. Þegar eru í boði námskeið um kjarnastaðlana í ISO 9000 röðinni, um CE-merkingu véla og námskeið um CE-merkingu lækningatækja. Námskeiðin eru öllum opin, en Staðlaráð hefur jafnframt haldið sérnámskeið fyrir félagasamtök og fyrirtæki.

19.2.2002

ISO 9000 - Samskipti í brennidepli

Það eru engin ný sannindi að viðskiptavinurinn ráði, þegar allt kemur til alls, gæfu og gengi fyrirtækja. Þess vegna er í gæðastjórnunarstaðlinum ISO 9001:2000 gert ráð fyrir að viðskiptavinurinn sé bæði upphaf og endir allra athafna fyrirtækisins. Í því felst að samskipti við viðskiptavini eru afar mikilvæg.

19.2.2002

Þýðing á stöðlum um steinsteypu - ræðst af áhuga byggingariðnaðarins

Staðlaráð Íslands, í samstarfi við Byggingarstaðlaráð og Samtök iðnaðarins, er að kanna áhuga byggingariðnaðarins og annarra hagsmunaaðila á íslenskri þýðngu tveggja staðla um steinsteypu. Um er að ræða annars vegar staðalinn ÍST EN 206-1 Concrete ? Part 1: Specification, performance, production and conformity, og hins vegar forstaðalinn FS ENV 13670-1 Execution of concrete structures ? Part 1: Common.

19.2.2002

Rafstaðlaráð - Spennandi verkefni

Unnið er að spennandi verkefnum á vegum Rafstaðlaráðs, innan þeirra þriggja tækninefnda sem starfa á vegum ráðsins.

19.2.2002

SARÍS Samráð um rafrænt Ísland

SARÍS ? Samráð um rafrænt Ísland er heiti nýstofnaðs samráðsvettvangs um rafræn viðskipti í íslensku atvinnulífi. Megináhersla er á að stuðla að stöðlun og samræmingu í rafrænum viðskiptum fyrirtækja og stofnana. Stofnfundur SARÍS var 17. janúar síðastliðinn.

19.2.2002

Construct North - málþing 27. febrúar til 3. mars

Samtök iðnaðarins og samstarfsaðilar efna til málþings og ráðstefna á Grand Hótel og fagsýningar og fyrirlestradaga í Laugardalshöll undir yfirskriftinni Construct North ? hönnun, tækni og mannvirkjagerð á norðurslóðum. Að baki efnistökum og þema CN liggur stefnumótun og framtíðarsýn íslensks byggingariðnaðar árið 2005 sem fjölmörg fyrirtæki og fagfélög innan SI tóku þátt í að móta.

19.2.2002

CE-merking véla - Námskeið 20. og 21. febrúar

Staðlaráð Íslands heldur námskeið um CEmerkingu véla 20. og 21. febrúar. Markmiðið er að þátttakendur verði færir um að greina hvort vörur falli undir vélatilskipun ESB og læri hvernig á að CE-merkja slíkar vörur.

19.2.2002

Allir staðlar á einum stað

Staðlaráð Íslands er hvorki elsta n fjölmennasta staðlastofnun Evrópu. Við leggjum okkur hins vegar fram um að þjóna viðskiptavinum af kostgæfni. Markmiðið er að viðskiptavinir okkar geti á einum stað fengið alla heimsins staðla.

15.1.2002

SARÍS Samráð um rafrænt Íslands

Fimmtudaginn 17. janúar n.k. munu fjögur samtök sem með einum eða öðrum hætti hafa staðið fyrir umræðu og verkefnum á sviði upplýsingatækni, þ.m.t. rafrænna viðskipta, undirrita samkomulag um samráðsvettvanginn SARÍS, Samráð um rafrænt Ísland.

Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Staðlamál - fréttir