Beint á leiðarkerfi vefsins

Staðlamál

30.10.2001

Íslenskir staðlar um stjórnun upplýsingaöryggis koma út 15. nóvember Staðlana er hægt að panta nú þegar á sérstöku kynningarverði með 15% afslætti

Um er að ræða íslenska þýðingu á alþjóðlega staðlinum ÍST ISO/IEC 17799:2000 Upplýsingatækni - Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis og breska staðlinum ÍST BS 7799-2:1999 Stjórnun upplýsingaöryggis - 2. hluti: Forskrift fyrir stjórnun upplýsingaöryggis, sem er kröfustaðall. Staðlarnir eru upphaflega breskir og tilheyrðu röð sem bar auðkennið BS 7799. Telja má víst að staðlarnir eigi eftir að hljóta mikla útbreiðslu á Íslandi líkt og víða um lönd. Þörf fyrir leiðbeiningar og handhæg verkfæri á þessu sviði er brýn. Í inngangi ÍST ISO/IEC 17799 segir meðal annars:

1.10.2001

Eldvarnarprófanir - Staðall fyrir framleiðendur og innflytjendur eldvarnarhurða

Á liðnu ári var staðfestur staðallinn ÍST EN 1634-1:2000 Fire resistance tests for door and shutter assemblies - Part 1: Fire doors and shutters. Líkt og nafnið gefur til kynna, fjallar staðallinn um aðferðir til að prófa og ákvarða viðnám eldvarnarhurða af margvíslegu tagi gegn eldi. Staðallinn er notaður ásamt staðli sem heitir ÍST EN 1363-1 Fire resistance tests - Part 1: General requirements. Staðallinn ÍST EN ISO13943:2000 Fire safety - Vocabulary hefur síðan að geyma skilgreiningar á hugtökum.

1.10.2001

Alþjóðlegi staðladagurinn 14. október 2001 - Staðlar og umhverfi hönd í hönd

Alþjóðlega Staðladeginum verður fagnað í þrítugasta og annað sinn þann 14. október. Þetta árið er dagurinn helgaður umhverfinu. Það er ekki að ófyrirsynju. Skilyrði þess að markmið þjóða í umhverfismálum nái fram að ganga er samkomulag um hvernig skuli t.d. mæla mengun og meta árangur. Án sammælis um slík grundvallaratiði - án staðla - verður hvorki samið um eitt né neitt.

1.10.2001

Stjórnun umhverfismála í fyrirtækjum - ISO 14000

Fyrirtæki víða um heim hafa fundið fyrir vaxandi samkeppni á öllum sviðum síðustu áratugi. Ekki er útlit fyrir annað en samkeppnin haldi áfram að aukast. Lönd sem áður gátu treyst því að vera næstum einráð á ákveðnu sviði standa allt í einu frammi fyrir því að annars staðar á hnettinum er fyrir samskonar þekking, þekking sem miðlað er með sífellt meiri hraða.

1.10.2001

Fötin lækna manninn - British Standards 100 ára

Bresku staðlasamtökin BSI áttu aldarafmæli á þessu ári. Þótt aldurinn færist yfir þá er nýjungagirnin söm við sig, enda 100 ár kannski ekki svo langur tími þegar stofnanir eiga í hlut. Hvaða sem því líður, þótti við hæfi að samtökin héldu uppá afmælið með því að verðlauna einhverja uppfinningu eða nýjung sem skæri sig úr. Fyrir valinu urðu föt sem lækna. Margir sækja sér hressingu og andlega upplyftingu í fatakaup, en hér er dálítið meira á ferðinni.

1.10.2001

Staðlamál og stadlar.is - ekki bara andlitslyfting

Það blasir við og þarf ekki að hafa um það mörg orð: Staðlamál - fréttabréf Staðlaráðs Íslands - hefur fengið nýtt útlit. Þetta er liður í allsherjar andlitslyftingu Staðlaráðs, andlitslyftingu sem reyndar er ekki öll í andliti fólgin heldur snýst fyrst og fremst um að bæta þjónustu við viðskiptavini okkar.

1.10.2001

Hvað er að græða á gæðastjórnun - Morgunráðstefna fyrir stjórnendur

Efnt verður til stuttrar ráðstefnu í SALNUM, Tónlistarhúsi Kópavogs, föstudagsmorguninn 12. október undir heitinu ?ISO 9000 - verkfæri til að gera betur. Hvað er að græða á gæðastjórnun??

28.9.2001

RÁÐSTEFNA föstudaginn 12. október - Hvað er að græða á gæðastjórnun

Forsvarsmenn framsækninna fyrirtækja segja skoðun sína á því og greina frá reynslu sinni af gæðastjórnun - Morgunráðstefna í SALNUM, Tónlistarhúsi Kópavogs, frá kl. 8:45-11:30. - ÓMISSANDI TÆKIFÆRI FYRIR ALLA STJÓRNENDUR til að kynnast dýrmætri reynslu annarra stjórnenda frá fyrstu hendi. - SKRÁÐU ÞIG STRAX !

24.9.2001

ISO 9000:2000 - Gæðastjórnunarstaðlar á íslensku

Þrír af fjórum kjarnastöðlum í ISO 9000 gæðastjórnunarröðinni voru staðfestir sem íslenskir staðlar 30. júní og fást hjá Staðlaráði í íslenskri þýðingu. Útgáfurnar innihalda einnig texta staðlanna á ensku, en þetta er í þriðja sinn sem staðlarnir eru staðfestir sem íslenskir staðlar. Staðlarnir mynda eina heild og bæta hvern annan upp. Þeir sem vilja vinna samkvæmt ISO 9000 gæðakerfi þurfa að hafa kjarnastaðlana við höndina. Staðlarnir þrír kosta samtals kr. 27.028,-.

1.6.2001

Staðall um fasteignaviðskipti - Fyrir kaupendur og seljendur nýrra og ófullbúinna fasteigna

Í fasteignaviðskiptum almennings er aleigan venjulega í húfi og reyndar gott betur. Þess vegna ríður á að viðskiptin séu traust og örugg. Fyrirtæki, stofnanir, ríki og sveitarfélög eiga einnig mikið undir því að fasteignaviðskipti gangi snurðulaust fyrir sig. Til þess að svo megi verða þarf að tryggja að skilningur kaupenda og seljenda sé hinn sami á ákvæðum samninga sem þeir gera sín á milli. Þegar verið er að kaupa og selja nýtt eða ófullbúið húsnæði er staðallinn ÍST 51 Byggingarstig húsa ómissandi.

1.6.2001

Staðall um alútboð og endurskoðun ÍST 30

Að venju er margt á könnu Byggingarstaðlaráðs. Auk þess að vinna að endurskoðun á staðlinum um byggingarstig húsa, sem fjallað er um á forsíðu fréttabréfsins, eru tvö mál sem ástæða er til að nefna sérstaklega. Annars vegar endurskoðun á staðlinum ÍST 30 og hins vegar hugmynd um að gera staðal um alútboð.

1.6.2001

Nýtt merki Staðlaráðs - Tákn um trausta og fjölbreytta þjónustu

Staðlaráð Íslands flutti í nýtt og betra húsnæði fyrir skömmu. Þess vegna þótti við hæfi að hressa enn frekar uppá útlitið með nýju merki.

1.6.2001

Nýr forseti CEN: Þurfum að flýta gerð staðla

Prófessor Christian Beckervordersandforth var nýlega kjörinn forseti Evrópsku staðlasamtakanna, CEN. Hann hefur frá því 1990 unnið á þróunar- og tækniþjónustusviði stórfyrirtækisins Ruhrgas í Þýskalandi auk þess að kenna við Bochumháskóla. Beckervorder-sandforth gegnir jafnframt margvís-legum trúnaðarstörfum fyrir gas- og vatnsveitur í Þýskalandi. En hvaða skoðanir hefur nýi forsetinn á evrópsku staðlasamstarfi, hvað er þar vel gert og hvað má betur fara?

1.6.2001

Aðalfundur Staðlaráðs - Brot úr ræðu fráfarandi formanns

Aðalfundur Staðlaráðs Íslands var haldinn 3. maí. Það sem helst bar til tíðinda var að formaður ráðsins til margra ára, Friðrik Sigurðsson, óskaði ekki eftir endurkjöri. Í hans stað var kjörinn Víglundur Þorsteinsson. Staðlaráð býður Víglund hjartanlega velkominn um leið og Friðriki eru þökkuð góð viðkynning og ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Hér á eftir fara brot úr ræðu fráfarandi formanns, sem hann flutti á aðalfundinum.

Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Staðlamál - fréttir