Beint á leiðarkerfi vefsins

Umsókn um afhendingu staðla á pdf-sniði

Fyrirtæki sem átt hafa regluleg viðskipti við Staðlaráð Íslands geta sótt um að fá skjöl afhent á rafrænu sniði. Þar er um að ræða staðla og önnur skjöl frá Alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO, Alþjóða raftækniráðinu IEC og evrópsku staðlasamtökunum CEN og CENELEC. Sjá sýnishorn af samningi sem gera þarf til að fá skjöl afhent á pdf-sniði (ATH. samningurinn nær ekki til þýddra og séríslenskra staðla):

pdfhnappurSýnishorn samnings fyrir afhendingu á pdf ( pdf, 168 kb )

Umsóknin verður yfirfarin af Staðlaráði. Ef fallist verður á að gera samning fær tengiliður fyrirtækis samninginn sendan til sín á pappír í tveimur eintökum, undirrituðum af sölustjóra. Tengiliður undirritar samninginn og sendir annað eintak hans til baka til sölustjóra. Þegar sölustjóri fær samninginn undirritaðan til baka er opnað fyrir afhendingu skjala samkvæmt samningnum. Tengiliður fær tilkynningu um það í tölvupósti. Nánari upplýsingar veitir sölustjóri í síma 520 7150.

Tengiliður fær tilkynningu verði umsókn um samning hafnað.

   Staðfesti hér með að hafa lesið og skilið samninginn.

Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit