Persónukort
Allir sem gefa út persónukort hvers konar og vilja ekki að númer þeirra rekist á við önnur kortanúmer þurfa að fá útgefendanúmer samkvæmt íslenska staðlinum ÍST EN ISO/IEC 7812-1. Fagráð í upplýsingatækni sér um skráninguna og heldur utan um kerfið fyrir hönd Staðlaráðs Íslands. Skráning útgefandanúmers kostar 50.000 krónur.
Númerakerfið og skráningarreglur eru í samræmi við áðurnefndan staðal, ÍST EN ISO/IEC 7812-1. Fyrstu átta stafir innanlandskortanúmers auðkenna útgefanda. Fyrsti stafur númersins er 9, næst kemur 352 fyrir Ísland, þá flokkunartala sem segir til um atvinnugrein og loks þriggja stafa tala sem fagráðið úthlutar útgefanda kortsins. Á eftir útgefandanúmerinu kemur allt að 10 stafa númer sem útgefandi úthlutar korthafa. Kortanúmerið endar loks alltaf á vartölu sem er reiknuð samkvæmt fyrrgreindum staðli.
Umsókn um kortanúmer fyrir persónukort
Til að sækja um kortanúmer er handhægast er að fylla út „Umsókn um íslenskt útgefendanúmer fyrir persónukort" og senda til Staðlaráðs Íslands, Laugavegi 178, 105 Reykjavík. Umsóknir skal stíla á Guðbjörgu Björnsdóttur, sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar í síma 520 7150.
Sækja skjal (4 K)
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












