Beint á leiðarkerfi vefsins

Tæknileg innleiðing rafrænna reikninga

Námskeið fyrir tæknimenn sem annast útfærslu og innleiðingu á rafrænum reikningum.

MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur öðlist skilning á uppbyggingu staðla fyrir rafræna reikninga og geti innleitt slíka reikninga samkvæmt tækniforskriftinni TS 135.

Farið er yfir atriði sem skilgreind eru í forskriftinni, hvað innleiðing þarf að uppfylla til að teljast fullnægjandi og á hvaða hátt hægt er að skilgreina sértilvik án þess að víkja frá staðli eða tækniforskrift. Farið er í smáatriðum yfir innihald rafræns reiknings samkvæmt NES umgjörð 4 sem lýst er í tækniforskriftinni TS 135:2009. Einnig er farið yfir hvernig umgjörð 4 tengist við umgjarðir fyrir önnur rafræn skjöl og hvernig hægt er að koma í veg fyrir tvíverknað.

Dagskrá - Haust 2011 (Skráning, sjá neðar)

kl.  
08:30 Helstu staðlar og hlutverk þeirra
Uppbygging NES og BII.
09:10-09:20 hlé
09:20-10:00 Innihald rafræns reiknings
10:00-10:20 Kaffi
10:20-11:00 Innihald rafræns reiknings, framhald
11:00-11:10 hlé
11:10-11:50 Sannreyning rafrænna reikninga, viðbætur
11:50-12:35 Hádegisverður
12:35-13:05 Útfærslur við almenna dreifingu og móttaka
13:05-13:25 Umgjörð rafrænna viðskipta, burðarlag, lagakröfur, vistun ofl.
13:25-13:35 hlé
13:35-14:15 Verkefni við útfærslu rafræns reiknings
14:15-14:25 hlé
14:25-14:45
Umræður um helstu atriði verkefna
Umræður og samantekt
14:45 Námskeiði slitið

Dagsetning og tími: Haust 2011 kl. 8:30-14:45 (skráning, sjá neðar)
Staður: Staðlaráð Íslands, Skúlatúni 2.
Verð: 43.000 kr. Allt innifalið, námsgögn og viðurværi

Hámarksfjöldi þátttakenda:

Leiðbeinandi:

12 manns

Georg Birgisson, rekstrarhagfræðingur

Skráðu þig á póstlista og fáðu tilkynningu þegar skráning hefst á næsta námskeið. Póstlistinn er hér >>


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit