Beint á leiðarkerfi vefsins

Hagnýting rafrænna reikninga

Námskeið fyrir fjármálastjóra og framkvæmdastjóra sem vilja nýta hagræði af rafrænum reikningum.

MARKMIРnámskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á nýtingu staðlaðra rafrænna reikninga. Hvernig nota má rafræna reikninga til aukins hagræðis, draga úr kostnaði, auka skilvirkni við sendingu og móttöku og úrvinnslu reikninga í bókhaldi.

Fjallað er um áhrif sem innleiðing rafrænna skjala hefur á vinnuferla fyrirtækis og farið yfir þau verkefni sem þarf að sinna til að ná árangri við innleiðingu rafrænna reikninga.

Námskeiðið miðast við innleiðingu rafrænna reikninga samkvæmt TS 135:2009 Tækniforskrift fyrir einfaldan rafrænan reikning - NES umgjörð 4.

Innan evrópsku staðlasamtakanna CEN hefur verið lögð áhersla á að greiða fyrir rafrænum viðskiptum, bæði innanlands sem og milli fyrirtækja í Evrópu. Á Íslandi hafa ýmis ráðuneyti, stofnanir og fyrirtæki lagt töluvert af mörkum til rafrænna viðkipta. Rafrænn reikningur er þar einn þáttur og gefur mikilvægt tækifæri til hagræðis og sparnaðar.

Dagskrá 7. október (skráning, sjá neðar)

08:30  Markmið rafrænna viðskipta, helstu staðlar og tilgangur þeirra
09:10-09:20 hlé
09:20-10:00 Ávinningur af notkun rafrænna reikninga
Útfærslur í uppsetningu
10:00-10:20 Kaffi
10:20-11:00 Áhrif rafrænna reikninga á vinnuferla
11:00-11:10 hlé
11:10-11:50 Fyrirkomulag innleiðingar, helstu verkefni
Umræður og samantekt
   
11:50 Námskeiði slitið

Dagsetning og tími:

7. október (skráning, sjá neðar)

Staður: Staðlaráð Íslands, Skúlatúni 2.
Verð: 27.500 kr.

Hámarksfjöldi þátttakenda:

Leiðbeinandi:

12 manns

Georg Birgisson, rekstrarhagfræðingur

Skráðu þig á póstlista og fáðu tilkynningu þegar skráning hefst á næsta námskeið. Póstlistinn er hér ...


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit