ISO 9000 - Innri úttektir samkvæmt ISO 19011
Námskeið fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir samkvæmt úttektarstaðlinum ISO 19011 eða þurfa að þekkja framgang gæðaúttekta.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur skilji til hlítar tilgang og ferli innri úttekta á gæðakerfi samkvæmt ISO 19011, geti gert grein fyrir mikilvægustu atriðum slíkra úttekta og séu að loknu námskeiðinu færir um að framkvæma innri úttekt í samvinnu við reyndan úttektarmann.
Á námskeiðinu er byrjað á stuttri kynningu á kröfunum í ISO 9001. Síðan farið yfir grundvallaratriði og skipulag gæðaúttekta samkvæmt ISO 19011. Þátttakendur vinna hópverkefni um gæðaúttektir.
Innifalin námsgögn samanstanda af staðlinum ÍST EN ISO 19011, ásamt glærum úr kennsluefni.
Dagskrá 29. mars 2012 (skráning, sjá neðar)
| 12:15-13:15 | Kröfurnar í ISO 9001 - upprifjun |
| 13:15-13:20 | hlé |
| 13:20-14:00 | Úttektir, viðmið og markmið - Úttektarmenn |
| 14:00-14:05 | hlé |
| 14:05-14:45 | Skipulag og undirbúningur - Úttektarskjöl |
| 14:45-15:00 | Kaffi |
| 15:00-16:00 | Að gera úttekt - Mat og niðurstöður |
| 16:00-16:45 | Verkefni - Kynning á niðurstöðum verkefna |
| 16:45-16:55 | Eftirfylgni úttekta |
| 17:00 | Samantekt - Námskeiði slitið |
| Dagsetning og tími: |
29. mars 2012 (skráning, sjá neðar) |
| Staður: | Staðlaráð Íslands, Skúlatúni 2. |
| Verð: | 25.500 kr. Allt innifalið, námsgögn og viðurværi |
|
Hámarksfjöldi þátttakenda: |
14 manns |
Skráðu þig á póstlista og fáðu tilkynningu þegar skráning hefst á næsta námskeið. Póstlistinn er hér >>
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













