Beint á leiðarkerfi vefsins

Vottuð gæðakerfi - ISO 9000

ÍST EN ISO 9001 er svonefndir kröfustaðall. Í honum eru settar fram grunnkröfur til gæðakerfa. Þegar fyrirtæki fá gæðakerfi sín vottuð er vottunin samkvæmt ISO 9001. Það er svonefnd ISO 9000 gæðavottun.

Um þrír tugir íslenskra fyrirtækja hafa fengið gæðakerfi sín vottuð samkvæmt ISO 9001. Það er frekar lág tala miðað við það sem gerist í Vestur-Evrópu. Reikna má með að breyting verði þar á, því  fjöldi þeirra fyrirtækja í öllum greinum atvinnulífsins sem fá gæðakerfi sín vottuð eykst hröðum skrefum.

Ávinningurinn af vottuðu gæðakerfi er tvíþættur. Annars vegar markaðslegur og hins vegar rekstrarlegur. Í mörgum greinum atvinnulífsins er vottun nánast skilyrði. Þar má nefna sem dæmi lyfjaiðnaðinn. Í öðrum greinum, svo, sem hugbúnaðar- og upplýsingatækni, má segja að vottun sé mikilvæg forsenda þess að fyrirtæki tollí á markaði og geti sótt fram. Þótt hér séu tilteknar ákveðnar greinar atvinnulífsins verður að hafa í huga að ISO 9000 staðlarnir eru fyrir öll fyrirtæki óháð því hvaða starfsemi fer þar fram. Þá er komið að hinum rekstrarlega þætti. Þótt hin markaðslega hlið vottunar sé mikilvæg og komi öllum fyrirtækjum að gagni, er rekstrarlegi þáttiurinn þó enn mikilvægari. Þar er eftir miklu að slægjast. Gæðastjórnun er ekki abstrakt hugtak eða stjórnkerfi sem aðeins hentar fyrirtækjum af ákveðnu tagi eða stærð. Gæðastjórnun snýst um hluti sem hver einasti stjórnandi er að fást við frá degi til dags. Skilvirkari og ábatasamari stjórnun hentar öllum og það er ekki til það fyrirtæki eða sú stofnun sem ekki getur gert betur með með ISO 9000. Það er hægt að byggja upp gæðakerfi samkvæmt ISO 9000 án þess að fá það vottað, en vottunin veitir aðhald og er jafnframt mikilvægt tæki í markaðsmálum.

Bergsteinn Einarsson, forstjóri Sets ehf. flutti erindi um reynslu fyrirtækisins af ISO 9000 gæðastjórnun á ráðstefnu undir heitinu ISO 9000 - verkfæri til að gera betur - Hvað er að græða á gæðastjórnun? Erindi Bergsteins er hér.


En af hverju að staðla kröfur til gæðakerfa og votta að þau uppfylli þær kröfur? Í ISO 9001 er að finna kröfur fyrir gæðakerfi og gæðatryggingu sem eru á engan hátt endanlegar heldur má líta á þær sem lágmarkskröfur. Gæðakerfi og bókhaldskerfi eru ekki ósvipuð í eðli sínu. Með bókhaldskerfi er verið að halda utan um fjárhagsstöðu fyrirtækisins frá einum tíma til annars. Þar eru grundvallarkröfur í lögum hafðar til hliðsjónar. Í nútímarekstri dettur fáum annað í hug en að líta á lögin sem lágmarkskröfur. Það er síðan komið undir stjórnendum að gera enn betur. Á sama hátt ber að skoða kröfur til gæðakerfa. Alþjóðleg samtök á borð við ISO búa ekki til kröfur sem aðeins eru sniðnar að þeim sem eru fremstir nú þegar. Enda reynist fyrirtækjum sem eru með þróuð gæðakerfi auðvelt að mæta kröfum ISO 9001. Önnur eiga mikla vinnu fyrir höndum í gæðamálum. En öll fyrirtæki ættu að skoða þann möguleika vandlega að koma sér upp vottuðu gæðakerfi.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO


áhugavert efni

Panta handbók um ÍST 200

Gæðaverkfæri: ISO 9001:2000 Vinnubók

ÍST 200

SI-kerfið. Leiðbeiningar


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit