Beint á leiðarkerfi vefsins

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir

Kjarnastaðlarnir í ISO 9000 staðlaröðinni mynda eina heild. Þeir sem vilja vinna samkvæmt ISO 9000 gæðakerfi er ráðlagt að hafa kjarnastaðlana við höndina.

Eftirtaldir staðlar mynda kjarnastaðla ISO 9000 raðarinnar:

  • ÍST EN ISO 9000:2005 Gæðastjórnunarkerfi - Grunnatriði og íðorðasafn
  • ÍST EN ISO 9001:2008 Gæðastjórnunarkerfi - Kröfur
  • ÍST EN ISO 9004:2000 Gæðastjórnunarkerfi - Leiðbeiningar um bætta frammistöðu
  • ÍST EN 19011:2002 Leiðbeiningar um úttekt á gæða- og umhverfisstjórnunarkerfum

ISO 9000 inniheldur skilgreiningar á hugtökum eins og t.d. „gæði" og tryggir þannig að skilningur manna sé einn og hinn sami. Staðallinn kemur í stað ISO 8402 og ISO 9000-1.

ISO 9001 fjallar um grunnkröfur til gæðakerfa og eftir honum verður hægt að votta gæðakerfin. Staðallinn kemur þannig í stað 1994 útgáfu ISO 9001, 9002 og 9003.

ISO 9004 inniheldur leiðbeiningar um bættan árangur. Uppbygging staðalsins er hin sama og ISO 9001 staðalsins. En þar eru meðal annars leiðbeiningar varðandi atriði sem ekki er að finna í þeim staðli. Dæmi: Hvers vegna hættir fólk hjá okkur? Við uppbyggingu gæðakerfa vilja menn gera betur en bara að mæta kröfum samkvæmt ISO 9001. Því er ljóst að ISO 9004 er mikilvægt plagg þeim sem vilja bæta rekstur sinn og ná meiri árangri í gæðamálum. ISO 9004 kemur í stað ISO 9004-1.

ISO 19011 eru leiðbeingar um stjórnun úttekta, hvort sem um er að ræða gæða- eða umhverfisúttektir. Framkvæmd úttekta mun þannig verða eins hvort sem um er að ræða gæða- eða umhverfisúttektir og grunnkröfur til úttektarmanna hinar sömu. Staðall þessi er löngu tímabær því gífurlega miklum tíma og fé er varið í úttekir í fyrirtækjum og eins gott að vanda til þeirra. ISO 19011 mun koma í stað fimm úttektarstaðla úr ISO 9000 og ISO 14000 röðunum.

Hægt er skoða umfang (scope) eftirfarandi staðla:

  • ÍST EN ISO 9000:2005 Gæðastjórnunarkerfi - Grunnatriði og íðorðasafn
  • ÍST EN ISO 9001:2008 Gæðastjórnunarkerfi - Kröfur
  • ÍST EN ISO 9004:2000 Gæðastjórnunarkerfi - Leiðbeiningar um bætta frammistöðu 
  • ÍST EN ISO 19011:2002 Leiðbeiningar um úttekt á gæða- og umhverfisstjórnunarkerfum 
                                               
    (ekki þýddur á íslensku)
     


     


  • áhugavert efni

    Panta handbók um ÍST 200

    Gæðaverkfæri: ISO 9001:2000 Vinnubók

    ÍST 200

    SI-kerfið. Leiðbeiningar


    Stjórnborð

    Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

    Staðlabúð


    Finna og panta staðal

    Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

    Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

    >> Ítarleg leit