Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnun umhverfismála - ISO 14000

Árið 1993 var á vegum Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO stofnuð tækninefndin TC 207 Environmental management, sem var fengið það hlutverk að semja staðla um stjórnun umhverfismála. TC 207 skiptist í sex undirnefndir sem hver um sig hefur einn málaflokk til umfjöllunar:

  • Umhverfisstjórnunarkerfi
  • Umhverfisúttektir
  • Frammistöðumat í umhverfismálum
  • Líftímagreining
  • Orð og hugtök í umhverfismálum
  • Umhverfismerkingar

Meginmarkmiðið með stjórnun umhverfismála er að lækka kostnað fyrirtækja vegna umhverfismála og draga úr skaðlegum áhrifum fyrirtækja á umhverfið. Einnig að tryggja að lögum og reglugerðum um umhverfismál sé fylgt.

Fyrirtæki sem taka upp umhverfisstjórnunarstaðla geta haft af því umtalsverðan ávinning:

  • Með því að nota umhverfisstjórnunarstaðla fá stjórnendur betri yfirsýn yfir starfsemi fyrirtækisins. Yfirsýnin stuðlar að bættri stjórnun sem aftur leiðir til betri árangurs í umhverfismálum.

  • Umhverfisstjórnunarstaðlar auðvelda fyrirtækjum að uppfylla bæði frjálsar og lögbundnar kröfur í umhverfismálum.

  • Fyrirtæki sem koma á umhverfisstjórnunarkerfi öðlast bætta ímynd í augum kaupenda, stjórnvalda, hluthafa, lánastofnana og tryggingarfélaga sem líkleg til að leiða til bættrar afkomu.

  • Í fyrirtækjum sem nota umhverfisstjórnunarstaðla skapast forsendur til að draga mjög úr eftiliti og stuðla þannig að lægri kostnaði.

áhugavert efni

Panta handbók um ÍST 200

Gæðaverkfæri: ISO 9001:2000 Vinnubók

ÍST 200

SI-kerfið. Leiðbeiningar


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit