Beint á leiðarkerfi vefsins

ISO 14000 umhverfissjórnunarstaðlarnir

ISO 14000 staðlarnir fjalla annars vegar um umhverfisstjórnunarkerfi og mat á því og hins vegar um mat á umhverfisáhrifum í tengslum við vörur og lífferli vöru og þjónustu. Nokkrir umhverfisstjórnunarstaðlar hafa verið gefnir út. Þar af hefur einn verið þýddur á íslensku:

  • ÍST EN ISO 14001:2004 Umhverfisstjórnunarkerfi - Kröfur ásamt leiðbeiningum um notkun. Í staðlinum er lýst þeim grunnatriðum sem sérhvert umhverfisstjórnunarkerfi verður að fullnægja til þess að hægt sé að fá það vottað af óháðum aðila líkt og ISO 9000 gæðakerfi. Staðallinn hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum.

  • ÍST EN ISO 14004:2004 Environmental management systems - General guidelines on principles, systems and support techniques. Staðlinum er ætlað að leiðbeina stjórnendum við að koma á fót umhverfisstjórnunarkerfi í fyrirtæki sínu. Í honum er lýsing á því yfir hvað slíkt kerfi þarf að ná og auk þess eru veitt hagnýt ráð.

  • ISO 19011 eru leiðbeingar um stjórnun úttekta, hvort sem um er að ræða gæða- eða umhverfisúttektir. Framkvæmd úttekta mun þannig verða eins hvort sem um er að ræða gæða- eða umhverfisúttektir og grunnkröfur til úttektarmanna hinar sömu. Staðall þessi er löngu tímabær því gífurlega miklum tíma og fé er varið í úttekir í fyrirtækjum og eins gott að vanda til þeirra. ISO 19011 mun koma í stað fimm úttektarstaðla úr ISO 9000 og ISO 14000 röðunum.

Hér er hægt að skoða efnisyfirlit og umfang ÍST EN ISO 14001:2004

pdfhnappuriEfni úr ISO 14001 ( pdf, 46 kb ) 

Einnig er hægt er skoða umfang (scope) eftirfarandi staðals:

ÍST EN ISO 19011:2002 Leiðbeiningar um úttekt á gæða- og umhverfisstjórnunarkerfum (ekki þýddur á íslensku)

Fleiri staðlar úr 14000-röðinni ...

Tengsl við EMAS
Evrópusambandið hefur gefið út reglugerð (990/2005) „Reglugerð um frjálsa þátttöku fyrirtækja og stofnana í umhverfisstjórnunarkerfi bandalagsins (EMAS)".

 


áhugavert efni

ISO 9001 fyrir litil fyrirtaeki_3_utgafa 

Auglysing_Thjodarvidaukar

Panta handbók um ÍST 200

ÍST 200   

SI-kerfið. Leiðbeiningar


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit