Beint á leiðarkerfi vefsins

Véltækni

Fagstjórn í véltækni fjallar um ákveðin fagsvið innan evrópskrar stöðlunar sem eru metin mikilvæg fyrir hagsmuni íslenskra fyrirtækja og íslensks iðnaðar. Um er að ræða eftirfarandi fagsvið:

  • Öryggi véla og búnaðar
  • Málmsuða og prófanir
  • Kæli- og frystibúnaður, umhverfisáhrif
  • Stálvirki og vélahlutahönnun
  • Matarvinnsluvélar

Lögð er áhersla á mikilvægi stöðlunar í véltækni, meðal annars vegna útflutnings vélbúnaðar og hátæknibúnaðar. Jafnframt er stöðlun í véltækni mikilvægur þáttur í íslenskum iðnaði vegna veitukerfa, stálvirkja, orkumannvirkja, skipasmíða o.fl. Stöðlunin beinist oft að öryggi fólks, svo sem í sambandi við lyftur, krana, þrýstikúta, gufukatla og ýmsan vélbúnað.

Eitt af verkefnum fagstjórnarinnar er að ákveða hvort ástæða sé til að þýða erlenda staðla um véltækni. Um þýðingar staðla í véltækni gilda sömu viðmið og um þýðingar annarra staðla. Þýðingar eru aðeins mögulegar ef nægjanlega stór markhópur er fyrir hendi eða hagsmunaaðilar kosti þýðingarnar. Annars er talið betra að hafa staðlana á ensku en beina kröftunum í að kynna efni þeirra og mikilvægi fyrir notendum.

Fagstjórn í véltækni hefur staðið fyrir þýðingu tveggja Evrópustaðla:

  • ÍST EN 287-1:1993 Hæfnispróf suðumanna - Rafsuða og logsuða - 1. hluti: Stál
  • ÍST EN 1672-2:1997 Vélar til matvælavinnslu - Grunnhugtök - 2. hluti: Hreinlætiskröfur

Umsjón með starfi fagstjórnarinn er hefur Sigurður Sigurðarson, tæknifræðingur hjá Staðlaráði Íslands.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit


Slóðin þín:

Fagsvið » Véltækni