Um Rafstaðlaráð
RST var stofnað með því markmiði að skapa breiðan grundvöll fyrir samvinnu um rafstöðlun meðal hagsmunaaðila hér á landi svo og til að taka þátt í rafstöðlun á alþjóðavettvangi. RST eru opin samtök fyrir innlenda hagsmunaaðila og alla þá sem vilja fylgjast með og hafa áhrif á gerð staðla. Aðild að RST veitir aðgang að nýjustu upplýsingum um gang alþjóðlegrar stöðlunar. Aðilar RST geta haft áhrif á gerð staðla á evrópskum vettvangi og frumkvæði að gerð séríslenskra staðla auk handbóka og annars kynningarefnis á íslensku.
RST tekur þátt í alþjóðastöðlun á sviði raftækni og fjallar um tæknileg málefni sem heyra undir evrópsku rafstaðlasamtökin CENELEC og Alþjóða raftækniráðið IEC. RST leitast við að kynna fyrir aðilum sínum og öðrum þeim sem málið varðar, það stöðlunarstarf sem fram fer á vegum CENELEC og IEC og að gæta íslenskra hagsmuna á þeim vettvangi. RST hefur auk þess frumkvæði að nýjum verkefnum á staðlasviði hér innanlands.
Nánari upplýsingar um Rafstaðlaráð veitir Sigurður Sigurðarson hjá Staðlaráði Íslands í síma 520 7150.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












