Tækninefndir og verkefni
Orkustjórnun í litlum og meðalstórum fyrirtækjum - Kynningarfundur 15. október
Norræni nýsköpunarsjóðurinn og Staðlaráð eru að hrinda af stað verkefni um orkustjórnun í litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Gróðurhús, bakarí og prentsmiðjur eru hvött sérstaklega til að taka þátt í verkefninu. Ætlunin er að þróa hagnýt verkfæri í samvinnu við einstök fyrirtæki til að ná fram orkusparnaði með orkustjórnun.
Nánari upplýsingar um verkefnið >>
Nýr staðall um raforkuvirki
Komin er út nýr staðall, ÍST 200:2006 - Raflagnir bygginga, um rafmagnsöryggi á vegum Staðlaráðs Íslands. Þessi nýi staðall byggir á alþjóðlegu staðlaröðinni IEC 60364 og evrópskum HD 384 samræmingarskjölum. Neytendastofa – rafmagnsöryggisdeild mun leggja til við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið að vísað verði í nýja staðalinn í nýrri reglugerð sem mun leysa núverandi reglugerð (nr. 264) um raforkuvirki af hólmi. Nánari upplýsingar um staðalinn fást hér.
Handbók tæknimanna
Í tengslum við útgáfu staðalsins og það að til hans verði vísað í reglugerð er það ætlun Rafstaðlaráðs (RST) og Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði (SART) að gefa út skýringarhandbók um staðalinn að fyrirmynd annarra Norðurlandaþjóða. Þessi handbók mun fjalla um staðalinn og útskýra, með texta og myndum, hvaða hugsun liggur á bak við einstök ákvæði hans og gefa dæmi um útfærslu. Handbókin er hugsuð sem leiðbeiningar- og hjálparrit fyrir hina ýmsu hópa tækni- og iðnaðarmanna í rafmagni. Slík handbók mun bæta úr brýnni þörf sem verið hefur á aðgengilegu ítarefni um ákvæði reglugerðar um raforkuvirki og stuðla um leið að betri, vandaðri og samhæfðari frágangi raflagna og raforkuvirkja.
Skýringarhandbókin verður sniðin að norskri fyrirmynd (sjá hér ) og verður tæplega 300 blaðsíður unnin á vandaðan hátt.
Fóstrun tækninefnda
Til að virkja fleiri innan RST til þátttöku í starfinu hefur aðilum verið boðið að taka tækninefndir í “fóstur". Sá sem hefur áhuga á að fylgjast með störfum tækninefnda CENELEC og/eða IEC fær send öll gögn sem berast frá nefndunum. Hann kynnir sér gögnin eins og þau gefa tilefni til og gerir stjórn RST viðvart ef einhver atriði í störfum nefndarinnar þarfnast kynningar eða umfjöllunar á íslenskum vettvangi. Hægt er að fá aðgang að gögnum frá tækninefndunum í gegnum Internetið. Þeim sem hafa áhuga á slíku er bent á að hafa samband við Sigurð Sigurðarson, ritara rafstaðlaráðs, í síma 520 7150.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













