Beint á leiðarkerfi vefsins

Erlent samstarf

Rafstaðlaráð, í samstarfi við Staðlaráð, tekur þátt í samstarfi um mál sem heyra undir evrópsku rafstaðlasamtökin CENELEC og Alþjóða raftækniráðið IEC

Framkvæmdastjóri Staðlaráðs sækir aðalfundi CENELEC og IEC. Á aðalfundum er m.a. fjallað um stefnumál, breytingar á starfsreglum, um aðildarmál, samskipti við önnur stöðlunarsamtök (CEN, ETSI, ISO, ITU), samskipti við stjórnvöld og áheyrnaraðila, og fjármál.

Ritari Rafstaðlaráðs sækir fundi tækniráðs CENELEC, sem eru fjórir á ári. Á tækniráðsfundum er m.a. fjallað um úrslit atkvæðagreiðslna um staðlafrumvörp, ný verkefni, skýrslur um störf tækninefnda, samræmingu vinnu milli nefnda, stofnun nýrra tækninefnda, samstarf við CEN, ETSI og IEC, samstarf við EC og EFTA, nýjar stöðlunarbeiðnir frá ESB/EFTA, tengsl staðla og reglugerða/tilskipana, og innri stjórnun samtakanna.

Staðlaráð Íslands er aðeins aukaaðili (associate member) að IEC og því er ekki um þátttöku í öðrum fundum en aðalfundi að ræða. Þó er heimilt að taka þátt í tækninefndastarfi á vegum IEC sem áheyrnaraðili.

Nokkrir aðilar að Rafstaðlaráði hafa tekið að sér að fylgjast með starfi tiltekinna tækninefnda á vegum CENELEC og IEC, en fundir tækninefndanna hafa hingað til ekki verið sóttir.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit