Yfirlýsing FUT 2009
Yfirlýsing FUT um stuðning við CEN BII og PEPPOL
3. febrúar 2009
Nú stendur yfir vinna við skilgreiningu á tæknilegri grunngerð rafrænna viðskipta í vinnuhópi evrópsku staðlasamtakanna CEN. Framkvæmdaráð fagstaðlaráðs í upplýsingatækni, FUT, lýsir yfir stuðningi við þá vinnu sem þarna er að eiga sér stað. Vinnuhópurinn gengur undir heitinu „Business Interoperability Interfaces on public procurement in Europe“, CEN/ISSS WS BII. FUT hyggst, í samstarfi við Icepro, stuðla að innleiðingu þeirra afurða vinnuhópsins sem falla að íslensku viðskiptalífi, nú fyrst með útgáfu tækniforskriftar fyrir rafrænan reikning á grunni skilgreiningar „Profile 4 - Basic Invoice Only“.
Stuðningur framkvæmdaráðs FUT byggir á þeirri staðreynd að innan Evrópu er frumkvæði BII hópsins, sem að grunni til byggir á vinnu Northern European Subset, NES, leiðandi í mótun skilgreininga á grunnþáttum rafrænna opinberra innkaupa. Á fundi fulltrúa Evrópusambandsins, CEN, UN/CEFACT og OASIS 15. október 2008 kom fram að starf BII hópsins nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar og er séð sem mikilvægt framlag til þeirrar vinnu sem á sér stað innan UN/CEFACT.
Framkvæmdaráð FUT hvetur jafnframt hagsmunaaðila til þátttöku í evrópska PEPPOL tilraunaverkefninu, eftir því sem kostur er. Verkefnið, sem er styrkt af ICT Policy Support Programme (ICT PSP) verkefnaáætlun Evrópusambandsins, snýst um þróa rafræn opinber innkaup þannig að þau megi verða hnökralaus og auðveld í framkvæmd fyrir lítil sem stór fyrirtæki sem bjóða opinberum aðilum vörur sínar og þjónustu. PEPPOL verkefnið hyggst nýta sér tæknilegar skilgreiningar vinnuhóps CEN til uppbyggingar sinnar grunngerðar.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Björnsdóttir, verkefnastjóri FUT, í síma 520 7150.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












