Beint á leiðarkerfi vefsins

Tækninefnd um vinnustaðaskírteini

Meginhlutverk tækninefndar um vinnustaðaskírteini verður að þróa og móta staðal um vinnustaðaskírteini, samkvæmt samkomulagi SA og ASÍ um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum frá 14. júní, 2010, með síðari breytingum.

Jafnframt verður tekið mið af því starfi sem á sér stað hjá evrópskum og alþjóðlegum staðlasamtökum eftir því sem við á. Starfstími nefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið.  
Tækninefndin er öllum þeim opin sem hafa hagsmuna að gæta á starfssviði nefndarinnar og eru reiðubúnir til að leggja fram þá vinnu, aðstöðu og/eða fjármagn sem þarf til að standa undir starfi nefndarinnar. Helstu hagsmunaðilum er sent þetta fundarboð, en til þeirra teljast hugbúnaðarfyrirtæki, prentsmiðjur,  verslunar- og veitingafyrirtæki,  þjónustuaðilar,  samtök í atvinnulífi og opinberir aðilar.

Frumvarp af staðlinum var auglýst til umsagnar 12. júní 2012.
Umsagnarfrestur er til 14. ágúst 2012.
Frumvarpið er hægt að panta hér: frÍST 132 Vinnustaðaskírteini

Formaður tækninefndar:
Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri, Samiðn

Umsjónaraðili tækninefndar:
Steinunn Valdimarsdóttir, verkefnastjóri, FUT/Staðlaráði Íslands


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit