Tækninefnd um vefþjónustu banka og sparisjóða
Hlutverk tækninefndar um sambankaskema er að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir opið og staðlað umhverfi vefþjónustu banka og sparisjóða á Íslandi. Vinnan byggir á núverandi sambankaskema og þeim skilgreiningum sem til eru um það. Jafnframt er tekið mið af því starfi sem á sér stað hjá evrópskum og alþjóðlegum staðlasamtökum sem og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Starfstími tækninefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið.
Formaður tækninefndarinnar:
Hermann Þ. Snorrason, Landsbanka Hermann.T.Snorrason@landsbankinn.is
Faglegur ritari:
Kristinn Stefánsson, Arion banka kristinn.stefansson@arionbanki.is
Umsjónarmaður tækninefndar og vinnuhópa:
Steinunn Valdimarsdóttir, FUT/Staðlaráði steinunn@stadlar.is
Tækninefndin vinnur að þróun sambankaskemans og nýrrar vefþjónustu banka og sparisjóða í víðtæku samstarfi banka, sparisjóða, innheimtufyrirtækja, lausnaraðila, opinberra aðila og annarra hagsmunaaðila.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













