Tækninefnd um rafræna flutningakeðju
Meginhlutverk tækninefndar um rafræna flutningakeðju verður að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir rafræna miðlun upplýsinga á milli viðskiptaaðila og þjónustuaðila flutningskeðjunnar. Upplýsingarnar geta meðal annars varðað tollafgreiðslu vörunnar, innflutning hennar, afhendingu í og úr vöruhúsi, birgðabreytingar, afstemmingu birgða, staðsetningu vörunnar, ástand hennar og umhverfisaðstæður.
Jafnframt verður tekið mið af því starfi sem á sér stað hjá evrópskum og alþjóðlegum staðlasamtökum. Starfstími nefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið.
Tækninefndin er öllum þeim opin sem hafa hagsmuna að gæta á starfssviði nefndarinnar og eru reiðubúnir til að leggja fram þá vinnu, aðstöðu og/eða fjármagn sem þarf til að standa undir starfi nefndarinnar.
Fyrirhuguð verkefni tækninefndarinnar eru gerð tækniforskrifta um:
-
Móttökufyrirmæli (í vinnslu)
-
Flutningsfyrirmæli
-
Móttökustaðfesting
-
Afgreiðslufyrirmæli
-
Birgðabreytingar
-
Birgðalisti
Vinna við tækniforskrift um móttökufyrirmæli er í vinnslu. Vinna við aðrar tækniforskriftir hefst þegar henni er lokið.
Formaður tækninefndarinnar:
Þórir Magnússon, Nobex thorir@nobex.is
Umsjónarmaður tækninefndarinnar:
Steinunn Valdimarsdóttir, FUT/Staðlaráði steinunn@stadlar.is
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













