Beint á leiðarkerfi vefsins

Tækninefnd um grunngerð rafrænna viðskipta

Framkvæmdaráð fagstaðlaráðs í upplýsingatækni, FUT, stuðlaði að stofnun þessarar tækninefndar að tillögu vinnuhóps FUT um sama málefni og í samráði við Icepro. Með stofnun hennar hyggst FUT stuðla að innleiðingu þeirra afurða sem í þróun eru á evrópskum vettvangi; í Northern European Subset, NES, samstarfinu og á vegum vinnuhóps evrópsku staðlasamtakanna, CEN, „Business Interoperability Interfaces on public procurement in Europe“ (CEN/ISSS WS BII). Sjá nánar yfirlýsingu FUT „Rafræn viðskipti – tæknileg grunngerð“ dags. 3. feb. 2009.

Hlutverk tækninefndarinnar er að aðlaga og innleiða á Íslandi viðurkenndar skilgreiningar um grunngerð rafrænna viðskipta meðal annars með útgáfu tækniforskrifta og annarra normskjala eftir því sem við á. Starfstími tækninefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið. 

Fyrsta verkefni nefndarinnar var að ganga frá tækniforskrift um einfaldan rafrænan reikning sem var gefinn út 14. október 2009. Tækniforskriftin er greinargóð lýsing á rafrænum íslenskum reikningi og þjónar sem leiðarvísir fyrir forritara hugbúnaðarkerfa og aðra þá sem koma að innleiðingu rafrænna reikninga í fyrirtækjum og stofnunum.

Nú, í ársbyrjun 2010 gangsetti tækninefndin þrjá nýja vinnuhópa sem hver um sig mun vinna að gerð nýrra tækniforskrifta.

Vinnuhópi um BII reikning (BII 04) er ætlað koma með tillögu að innihaldi tækniforskriftar fyrir rafrænan reikning sem byggir á BII umgjörð 4, einni af lokaafurðum fyrsta fasa CEN BII verkefnisins. Við gerð tækniforskriftar 135 um einfaldan rafrænan reikning, sem gefin var út í haust, var höfð hliðsjón af þessari vinnu þó svo að tækniforskriftin taki mið af NES umgjörðum. Formaður þessa vinnuhóps er Ragnar Torfi Jónasson, Landsbankanum Ragnar.T.Jonasson@landsbankinn.is.

 

Vinnuhópi um BII kreditreikning (BII 05) er ætlað koma með tillögu að innihaldi tækniforskriftar fyrir rafrænan kreditreikning sem byggir á BII umgjörð 5, einni af lokaafurðum fyrsta fasa CEN BII verkefnisins. formaður vinnuhópsins er Sæmundur Melstað, Húsasmiðjunni sammi@husa.is.

 

Vinnuhópi um BII pöntun (BII 03) er ætlað koma með tillögu að innihaldi tækniforskriftar fyrir rafræna pöntun sem byggir á BII umgjörð 3, einni af lokaafurðum fyrsta fasa CEN BII verkefnisins. Formaður vinnuhópsins er  Einar Geir Jónsson, Póstinum einarg@postur.is

 

Formaður tækninefndarinnar er Ragnar Torfi Jónasson, sérfræðingur, Landsbanka ragnar.t.jonasson@landsbankinn.is og umsjónaraðili tækninefndar og vinnuhópa hennar er Guðbjörg Björnsdóttir, verkefnastjóri, Staðlaráði gudbjorg@stadlar.is


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit