Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir af FUT

4.1.2012

Stofnfundur tækninefndar um rafræna greiðslumiðlun 12. janúar

Tækninefndir fagstaðlaráðs í upplýsingatækni, FUT, starfa í umboði framkvæmdaráðs FUT, samkvæmt reglum Staðlaráðs og fagstaðlaráðsins, en þær má finna á vef Staðlaráðs.

Meginhlutverk tækninefndarinnar verður að hafa umsjón með gerð normskjala um samskipti milli aðila vegna rafrænnar greiðslumiðlunar kredit- og debetkorta.

Gert er ráð fyrir að fyrsta verkefni tækninefndarinnar verði gerð tækniforskriftar um samskipti posa/miðlægs þjóns (tækniþjónusta t.d. Point, HandPoint) við móttökubúnað hjá færsluhirði eða þjónustu-/vinnsluaðila hans (t.d. Greiðsluveitan).

Í tækniforskriftinni eru skilgreind þau skeyti sem flytja gögn til meðhöndlunar heimildar- og fjárhagslegra færslna með greiðslukortum. Tillaga er um að nýta forskrift að samskiptum sem að Greiðsluveitan hefur þróað undanfarin ár. Jafnframt verður tekið mið af því starfi sem á sér stað hjá evrópskum og alþjóðlegum staðlasamtökum.

Starfstími nefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið.

Tækninefndin er öllum þeim opin sem hafa hagsmuna að gæta á starfssviði nefndarinnar og eru reiðubúnir til að leggja fram þá vinnu, aðstöðu og/eða fjármagn sem þarf til að standa undir starfi nefndarinnar.

Helstu hagsmunaðilum er sent þetta fundarboð, en til þeirra teljast verslunarfyrirtæki, þjónustuaðilar á sviði greiðslumiðlunar, fjármálafyrirtæki, framleiðendur og útgefendur korta, hugbúnaðarfyrirtæki og opinberir aðilar.

Steinunn Valdimarsdóttir
Fagstaðlaráði í upplýsingatækni (FUT)


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit