Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir af FUT

7.9.2010

Stofnun tækninefndar um rafræna flutningakeðju 15. september

Á stofnfundinum verður:

  • Farið yfir tillögu að starfi nefndarinnar og ræddar hugmyndir að markmiðum , verkefnum og tímaramma
  • Kynntar reglur um störf tækninefnda Staðlaráðs og fyrirkomulag á starfi tækninefnda FUT.
  • Leitað staðfestingar á þátttöku í tækninefndinni
  • Tímasettur fyrsti vinnufundur nefndarinnar

Tækninefndir fagstaðlaráðs í upplýsingatækni, FUT, starfa í umboði framkvæmdaráðs FUT, samkvæmt reglum Staðlaráðs og fagstaðlaráðsins. Starfsreglur FUT er finna hér >> Starfsreglur Staðlaráðs Íslands má finna hér >>

Tækninefndin er öllum opin sem hafa hagsmuna að gæta á starfssviði nefndarinnar og eru reiðubúnir til að leggja fram þá vinnu, aðstöðu og/eða fjármagn sem þarf til að standa undir starfi nefndarinnar. Helstu hagsmunaðilum er sent þetta fundarboð, en til þeirra teljast verslunarfyrirtæki, flutningafyrirtæki, þjónustuaðilar í innflutningi og vörudreifingu, hugbúnaðarfyrirtæki, samtök í atvinnulífi og opinberir aðilar.

Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn fyrir hádegi 13. september.

Smelltu hér til að skrá þig >>

Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og eru ekki þegar aðilar að Staðlaráði Íslands munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað. Þeir sem kjósa að taka ekki virkan þátt í starfinu en vilja vita af afurðum nefndarinnar eru beðnir um að láta vita af þeim áhuga.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit