Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir af FUT

11.3.2010

Tækninefnd FUT stofnar nýja BII vinnuhópa

Vinnuhópi um BII reikning (BII 04) er ætlað koma með tillögu að innihaldi tækniforskriftar fyrir rafrænan reikning sem byggir á BII umgjörð 4, einni af lokaafurðum fyrsta fasa CEN BII verkefnisins. Við gerð tækniforskriftar 135 um einfaldan rafrænan reikning, sem gefin var út í haust, var höfð hliðsjón af þessari vinnu þó svo að tækniforskriftin taki mið af NES umgjörðum. Formaður þessa vinnuhóps er Ragnar Torfi Jónasson, Landsbankanum Ragnar.T.Jonasson@landsbankinn.is.

Vinnuhópi um BII kreditreikning (BII 05) er ætlað koma með tillögu að innihaldi tækniforskriftar fyrir rafrænan kreditreikning sem byggir á BII umgjörð 5, einni af lokaafurðum fyrsta fasa CEN BII verkefnisins. formaður vinnuhópsins er Sæmundur Melstað, Húsasmiðjunni sammi@husa.is.

Vinnuhópi um BII pöntun (BII 03) er ætlað koma með tillögu að innihaldi tækniforskriftar fyrir rafræna pöntun sem byggir á BII umgjörð 3, einni af lokaafurðum fyrsta fasa CEN BII verkefnisins. Formaður vinnuhópsins er  Einar Geir Jónsson, Póstinum einarg@postur.is.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér verkefni tækninefndarinnar og/eða vinnuhópanna hafi samband við Guðbjörgu með tölvupósti á gudbjorg@stadlar.is í beinan síma 5207157 eða formenn vinnuhópa í tölvupósti.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit