Fréttir af FUT
4.9.2007
Paving for eFuture: Cross border eBusiness Readiness
Þróun viðskipta í Evrópu byggir mjög á upplýsinga- og fjarskiptatækni og útfærslu á rafrænum lausnum í viðskiptum á milli aðila. Nýting upplýsingatækni í viðskiptum og opinberri stjórnsýslu fer hratt vaxandi. Þörfin fyrir hnökralaus samskipti milli aðila og milli ríkja er mjög aðkallandi, meðal annars vegna samkeppnissjónamiða. Þetta kemur til dæmis fram í fjölmörgum verkefnum sem nú unnið að. Á ráðstefnunni munu innlendir og erlendir fulltrúar frá fyrirtækjum, stjórnsýslu og samtökum fjalla um stöðuna og tækifæri sem bjóðast.
Ráðstefnan er á vegum ETeB samstarfsins (European Network of National Test-beds for eBusiness), sem staðið hefur að verkefninu eBCM-RAP (www.ebcm-rap.net). Verkefnið hefur staðið yfir í þrjú ár, það er stutt af Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni og verkefnisstjórn er í höndum Staðlaráðs Íslands. Markmið verkefnisins er að þróa líkan sem nær til helstu þátta rafræns viðskiptaumhverfis og er ætlað að þjóna sem vegvísir við áframhaldandi þróun. Niðurstaða verkefnisins verður kynnt á ráðstefnunni.
Á ráðstefnunni verður fjallað um:
- Mikilvægi samstarfs á milli ríkja og vægi Norðurlanda í þróun rafrænna viðskipta í Evrópu
- Lærdóm Finna af stefnumörkun í upplýsinga- og fjarskiptatækni og árangur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
- Framgang NES (North European Subset) samstarfsins og árangur í samþættingu gagna í rafrænum innkaupum
- Mikilvægi og sérstöðu opinna og sértækra hugbúnaðarlausna
- Tækifæri fyrirtækja í upplýsingatækni nútímans, helstu hindranir og nauðsynlegar úrbætur
- Niðurstöður eBCM-RAP verkefnisins
- Áherslur í Eistlandi á skipulag, samræmingu gagna og tæknilega samþættingu
- Áherslur UN/CEFACT í þróun rafrænna viðskipta og mikilvæga þætti til árangurs
- Nýsköpun á Norðurlöndum og áherslur Norræna nýsköpunarsjóðsins á samstarf um uppbyggingu áþekkingarbrunnum fyrir nýsköpun í atvinnulífi
Ráðstefnan verður á ensku
Dagskrá ráðstefnunnar er að finna á vef SKÝ http://www.sky.is/2007-paving-for-efuture.html undir atburðir framundan.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský og aðila að Staðlaráði er 23.000 kr.
Þátttökugjald fyrir aðra er 27.000 kr.
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á sky@sky.is eða hringja í síma 553-2460.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













