Fréttir af FUT
18.5.2012
Stofnfundur tækninefndar um fjármálaþjónustu 23. maí
Erindi þetta er sent þeim sem talið er að hafi hagsmuna að gæta af þróun og notkun staðla á sviði fjármálaþjónustu. Þeir eru jafnframt hvattir til að kynna málið sem víðast.
Boðað er til stofnfundar tækninefndar FUT um fjármálaþjónustu
miðvikudaginn 23. maí kl. 14:00 – 16:00.
Fundarstaður: Staðlaráð Íslands, Skúlatúni 2 í Reykjavík, þriðju hæð.
Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn til undirritaðrar sem fyrst. Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og eru ekki þegar aðilar að Staðlaráði Íslands munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað.
29.3.2012
Vorfundur fagstaðlaráðs í upplýsingatækni 11. apríl
Vorfundur fagstaðlaráðs í upplýsingatækni (FUT)
miðvikudaginn 11. apríl kl. 8:15-10:30
Grand hótel Reykjavík – salur Háteigur A – Sigtúni 38
Dagskrá:
08:30 – 08:40 Fundur settur
08:40 – 09:30 Erindi og umræður:
- Persónuverndarlög – Ný tilskipun
Hörður Helgi Helgason, hæstaréttarlögmaður, Landslög
- Rafrænar þinglýsingar
Margrét Hauksdóttir, aðstoðarforstjóri Þjóðskrár Íslands
09:30 – 10:30 Vorfundarstörf:
1. Skýrsla FUT fyrir liðið starfsár
2. Starfs- og fjárhagsáætlun yfirstandandi árs
3. Breytingar á starfsreglum Engar breytingatillögur liggja fyrir
4. Kosning framkvæmdaráðs
5. Önnur mál
Vinsamlega staðfestið þátttöku á vorfundinum hér: Skráning
Einnig er hægt að tilkynna þátttöku með tölvupósti: steinunn@stadlar.is
4.1.2012
Stofnfundur tækninefndar um rafræna greiðslumiðlun 12. janúar
Boðað er til stofnfundar tækninefndar Fagstaðlaráðs í upplýsingatækni (FUT) um rafræna greiðslumiðlun fimmtudaginn 12. janúar kl. 13:30 – 15:00. Fundurinn fer fram hjá Staðlaráði Íslands að Skúlatúni 2 í Reykjavík.
Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn til undirritaðrar sem fyrst. Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og eru ekki þegar aðilar að Staðlaráði Íslands munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað.
Á stofnfundinum verður:
- Gerð grein fyrir reglum um störf tækninefnda Staðlaráðs og fyrirkomulagi á starfi tækninefnda FUT
- Farið yfir tillögu að starfi nefndarinnar og ræddar hugmyndir að markmiðum, verkefnum og tímaramma
- Leitað staðfestingar á þátttöku í tækninefndinni
- Valinn formaður og tæknilegur ritari tækninefndarinnar.
- Tímasettur fyrsti vinnufundur nefndarinnar
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













