Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir af FUT

7.9.2010

Stofnun tækninefndar um rafræna flutningakeðju 15. september

Boðað er til stofnfundar tækninefndar FUT um rafræna flutningakeðju miðvikudaginn 15. september kl. 14:00 – 15:30. Fundurinn fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, Reykjavík

 

Hlutverk tækninefndarinnar
Meginhlutverk tækninefndar um rafræna flutningakeðju verður að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir rafræna miðlun upplýsinga á milli viðskiptaaðila og þjónustuaðila flutningskeðjunnar. Upplýsingarnar geta meðal annars varðað tollafgreiðslu vörunnar, innflutning hennar, afhendingu í og úr vöruhúsi, birgðabreytingar, afstemmingu birgða, staðsetningu vörunnar, ástand hennar og umhverfisaðstæður.

Jafnframt verður tekið mið af því starfi sem á sér stað hjá evrópskum og alþjóðlegum staðlasamtökum. Starfstími nefndarinnar er ótímabundinn, en hún setur sér nánari markmið, verkefna- og tímaáætlun í samræmi við það umboð sem henni er gefið.

14.6.2010

Stefna FUT og Icepro 2010 - 2012

Á vorfundi FUT nú í apríl samþykkti fagstaðlaráð í upplýsingatækni stefnuna Rafræn viðskipti - Stefna fyrir íslenskt atvinnulíf og hið opinbera 2010 - 2012 sem varðar innleiðingu rafrænna viðskiptaskjala og er sameiginleg með Icepro, samstarf um rafræn viðskipti.

13.6.2010

Vorfundur FUT haldinn 29. apríl

Vorfundur FUT var haldinn 29. apríl á Grand hótel. Fundurinn hófst með kynningum á störfum tveggja tækninefnda FUT og síðan tóku við hefðbundin vorfundarstörf. 

Kynningar á vorfundi:

11.3.2010

Tækninefnd FUT stofnar nýja BII vinnuhópa

Tækninefnd um grunngerð rafrænna viðskipta hefur stofnað þrjá nýja vinnuhópa til að vinna að útgáfu næstu CEN BII tækniforskrifta. Hóparnir sem stofnaðir hafa verið munu vinna að uppfærslu rafræns reiknings í BII 04 - Basic Invoice og útgáfu BII 05 - Billing (kreditreikningur) og BII 03 - Basic Order (rafræn pöntun).


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit