Fréttir af FUT
14.6.2010
Stefna FUT og Icepro 2010 - 2012
Á vorfundi FUT nú í apríl samþykkti fagstaðlaráð í upplýsingatækni stefnuna Rafræn viðskipti - Stefna fyrir íslenskt atvinnulíf og hið opinbera 2010 - 2012 sem varðar innleiðingu rafrænna viðskiptaskjala og er sameiginleg með Icepro, samstarf um rafræn viðskipti.
13.6.2010
Vorfundur FUT haldinn 29. apríl
Vorfundur FUT var haldinn 29. apríl á Grand hótel. Fundurinn hófst með kynningum á störfum tveggja tækninefnda FUT og síðan tóku við hefðbundin vorfundarstörf.
11.3.2010
Tækninefnd FUT stofnar nýja BII vinnuhópa
Tækninefnd um grunngerð rafrænna viðskipta hefur stofnað þrjá nýja vinnuhópa til að vinna að útgáfu næstu CEN BII tækniforskrifta. Hóparnir sem stofnaðir hafa verið munu vinna að uppfærslu rafræns reiknings í BII 04 - Basic Invoice og útgáfu BII 05 - Billing (kreditreikningur) og BII 03 - Basic Order (rafræn pöntun).
2.11.2009
Stofnfundur um grunngerð vefþjónustu banka og sparisjóða
FAGSTAÐLARÁÐÍ UPPLÝSINGATÆKNI (FUT) boðar til stofnfundar tækninefndar föstudaginn 13. nóvember kl. 13:00 - 14:30 hjá Staðlaráði Íslands, Skúlatúni 2, Reykjavík.
Megin hlutverk tækninefndar um sambankaskema verður að þróa og móta tækniforskriftir og staðla fyrir opið og staðlað umhverfi vefþjónustu banka og sparisjóða á Íslandi.
Vinsamlega tilkynnið um áhuga á þátttöku í starfi nefndarinnar og mætingu á stofnfundinn til Guðbjargar Björnsdóttur fyrir hádegi 11. nóvember. Þeir sem hyggja á þátttöku í nefndinni og ekki
eru þegar aðilar að Staðlaráði Íslands munu fá sendar upplýsingar um aðild og umsóknareyðublað.
Nánari upplýsingar er að finna í eftirfarandi skjali:
Stofnfundur - Fundarboð ( pdf, 59 kb )
9.10.2009
Lyklar að hraða og hagræðingu - Ráðstefna á Grand Hótel 14. október kl. 13 - 17
Skýrslutæknifélag Íslands og FUT, fagstaðlaráð Staðlaráðs í upplýsingatækni, efna til ráðstefnu á alþjóðlega staðladaginn um rafræn viðskiptaskjöl og tengda þjónustu. Fjallað verður um efnið frá ýmsum sjónarhornum og leitast við að svara eftirtöldum spurningum:
- Hvernig er rafrænn reikningur útbúinn?
- Hvaða þjónusta er í boði fyrir rafræn viðskiptaskjöl?
- Hver er ávinningur og hagur notenda?
- Hvað þurfa hugbúnaðarhús að hafa í huga?
16.3.2009
Vorfundur fagstaðlaráðs í upplýsingatækni 18. mars
Vorfundur fagstaðlaráðs í upplýsingatækni 18. mars Kl. 08:30 – 11:00
Grand hótel Reykjavík - salur Háteigur A – Sigtúni 38
8.4.2008
ISO/IEC 29500 verður að alþjóðlegum staðli
Samþykkt var að gera frumvarp að ISO/IEC 29500 Information technology -- Office Open XML file formats að alþjóðlegum staðli. Atkvæðagreiðslunni lauk á miðnætti 29. mars síðastliðinn. Frumvarpið var samþykkt með 75% atkvæða en 14% voru á móti. Til þess að frumvarp verði að staðli þarf það að fá 2/3 hluta atkvæða (66,66%). Það skilyrði er jafnframt sett að 1/4 hluti (25%) atkvæða sé ekki greiddur gegn frumvarpinu.
22.2.2008
UMDEILT FRUMVARP að staðli um skráarsnið - Enn skal reynt
Frumvarpið ISO/IEC DIS 29500 Information technology -- Office Open XML file formats fékk ekki tilskilinn stuðning meðal aðila að Alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO og Alþjóðlega raftækniráðinu IEC í atkvæðagreiðslu síðastliðið haust. Markmiðið með fyrirhuguðum staðli var að auðvelda skipti algengra skjala milli mismunandi stýrikerfa og hugbúnaðar. Töluverður skoðanamunur er uppi meðal hagsmunaaðila, en þekktustu skjöl af þessu tagi eru eflaust þau sem tilheyra svonefndum Office-pakka frá Microsoft: Word, Excel og PowerPoint. Þótt hagsmunaaðilar hafi ekki náð saman í þetta sinn, verður þess enn freistað að ná samkomulagi.
Fundur verður um málið í Genf 25. - 29. febrúar.
4.9.2007
Paving for eFuture: Cross border eBusiness Readiness

Fjölþjóðleg ráðstefna ETeB og Ský um stöðu rafrænna viðskipta
Fimmtudaginn 13. september á Icelandair Hótel Loftleiðum í Reykjavík
26.8.2007
Boðað til fundar um stofnun tækninefndar í upplýsingatækni
Að frumkvæði Microsoft á Íslandi erboðað til undirbúningsfundar fyrir stofnun tækninefndar um íslenska þátttöku í JTC1 sem er samstarfsnefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO og Alþjóða raftækniráðsins IEC um stöðlun í upplýsingatækni.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 29. ágúst frá kl. 15:00 til 16:30. Fundarstaður: Staðlaráð Íslands, Laugavegi 178.
14.3.2007
Boðað er til stofnfundar tækninefndar FUT um íslenskt hnappaborð

Stofnfundur tækninefndar um íslenskt hnappaborð verður þriðjudaginn 27. mars 2007 kl. 14:00 til 15:30 hjá Staðlaráði Íslands, Laugavegi 178. Meginhlutverk nefndarinnar verður endurskoðun á staðlinum „ÍST125:1995 - Lyklaborð“, með tilliti til útlits, uppröðunar á innihaldi og ákveðinna nauðsynlegra lagfæringa, meðal annars vegna þróunar Evrópustaðla á þessu sviði.
10.11.2006
Stofnfundur tækninefndar um rafræn skilríki fimmtudaginn 16. nóvember kl 13

Erindi um stofnun tækninefndar FUT um rafræn skilríki hefur verið sent þeim sem talið er að hafi hagsmuna að gæta af þróun og notkun rafrænna skilríkja. Þeir voru jafnframt hvattir til að kynna málið sem víðast.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













