Beint á leiðarkerfi vefsins

Fagstaðlaráð í upplýsingatækni (FUT)

Fagstaðlaráð í upplýsingatækni (FUT) er vettvangur stöðlunar og samræmingar á sviði upplýsingatækni og starfar í umboði stjórnar Staðlaráðs Íslands í samræmi við starfsreglur þess um fag­staðla­ráð.

Umsjón með störfum FUT hefur Guðbjörg Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Staðlaráði. Guðbjörg er með tölvupóstfangið gudbjorg@stadlar.is og beinan síma 5207157.

  

Rafrænt samfélag, viðskipti og stjórnsýsla

Stöðlun og samræming, nauðsynlegar forsendur - Sýn Staðlaráðs Íslands / FUT og tillögur (byggt á yfirlýsingu stjórnar Staðlaráðs mars 2008)

Rafrænt samfélag, í þeim skilningi sem hér er lagður til grundvallar, er samfélag fólks, fyrirtækja og stofnana þar sem rafrænar aðferðir eru nýttar til skráningar, miðlunar, úrvinnslu og varðveislu upplýsinga. Þó svo að rafrænar aðferðir til miðlunar upplýsinga eigi sér langa sögu, til að mynda í fjarskiptatækni, þá var það fyrst með tilkomu tölva og netkerfa sem hægt var að skrá, miðla, vinna og geyma upplýsingar rafrænt. Þegar Internetið kom fram fyrir rúmum áratug, urðu til forsendur samfélagsbyltingar sem enginn sér ennþá fyrir um hver verður, en hún mun byggja á rafrænum aðferðum. Til að átta sig á hvert stefnir og hvað þurfi til að nýta þá möguleika sem bjóðast, er nauðsynlegt að velta fyrir sér þeirri tækni sem um er að ræða, en þar skiptir hugbúnaður höfuðmáli. Hugbúnaður er í einföldu máli lýsing á því hvernig eigi að meðhöndla upplýsingar þannig að þær haldi gildi sínu fyrir þann sem skráir upplýsingarnar og þann sem tekur við þeim. Til að gildi upplýsinga haldi sér þarf meðhöndlun þeirra að vera með samræmdum hætti hjá öllum þeim sem þurfa að nýta sér þær. Það kallar á skipulagt samráð, skjölun þess og miðlun. Staðlar og staðlastarf felur í sér sammæli hagsmunaaðila um þá þætti í starfsemi þeirra sem nauðsynlegt er að hafa samráð um.

Mikilvægir þættir stöðlunar og samræmingar

Forsenda þess að hagsmunaaðilar taki þátt í stölun og samræmingarvinnu er að af því verði ávinningur fyrir alla sem taka þátt með beinum eða óbeinum hætti. Samræming tekur tíma og tími er verðmætur. Til að ávinningur verði af samræmingu, skipta eftirfarandi þættir höfuðmáli: afurðin þarf að stuðla að bættri nýtingu verðmæta, skjölunin þarf að vera skýr, skilmerkileg og endurnýjast með breyttum aðstæðum, afurðin þarf að njóta viðurkenningar þeirra sem hyggjast nýta sér hana, vettvangur þarf að vera til staðar fyrir formleg og óformleg skoðanaskipti hagsmunaaðila og þjónusta þarf að vera til staðar sem veitir upplýsingar um afurðina og þá samræmingu er um ræðir. Staðlaráð Íslands / FUT er í einstakri aðstöðu til að styðja við þessa þætti.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Staðlabúð


Finna og panta staðal

Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.

Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.

>> Ítarleg leit