Helstu verkefni Byggingarstaðlaráðs
Verkefni í gangi
Þjóðarviðaukar við nýja þolhönnunarstaðla
Vinna er hafin við þjóðaviðaukana við nýju evrópsku þolhönnunarstaðlana, EN-Eurocodes staðlasettið, sem koma í stað íslensku forstaðlanna (FS ENV-Eurocodes staðlasettið) og þjóðarskjalanna sem nú eru í notkun. Nýju þolhönnunarstaðlarnir eru 58 talsins. Vinna við staðlanna er unnin í samstarfi BSTR og Umhverfisráðuneytisins. Aðalritari verkefnisins er Jón Sigurjónsson yfirverkfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Skipaðir hafa verið vinnuhópar um eftirfarandi fagsvið:
- Álagsstaðlar, formaður Flosi Sigurðsson verkfræðingur hjá Verkís
- Efnishönnunarstaðlar, formaður Snæbjörn Kristjánsson verkfræðingur hjá Ferli
- Grundunarstaðlar, formaður Pálmi Ragnar Pálmason verkfræðingur hjá Verkís
Auk þessu eru verkefnisstjórar vegna brunahönnunarstaðla, Björn Karlsson brunamálastjóri og vegna brúarstaðla, Einar Hafliðason hjá Vegagerðinni.
Fulltrúi Umhverfisráðuneytisins er Dr. Hafsteinn Pálsson verkfræðingur. Umsjón með verkefninu hefur Arngrímur Blöndahl ritari Byggingarstaðlaráðs og skal fyrirspurnum beint til hans í gengum tölvupóst arngrimur@stadlar.is eða í síma 520 7158.
ÍST 30 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir
Vinna er hafin við endurskoðun ÍST 30. Vinnuhópinn skipa 7 fulltrúar úr hópi hagsmunaðila. Formaður er Rögnvaldur Gunnarsson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni.
Verkefni á döfinni
- ÍST 45:2003 Hljóðvist - Flokkun Íbúðarhúsnæðis. Undirbúningur að þýðingu ÍST 45 er hafinn. Samhliða er á döfinni að gera staðal um flokkun atvinnuhúsnæðis með tilliti til hljóðvistar.
- Samningsskilmálar um alverktöku. Ákveðið hefur verið að hefja vinnu við gerð á nýjum staðli um samningsskilmála um alverktöku. Verkefnið er í undirbúningi.
- Herbergjafjöldi íbúða / húsa og skilgreining hæðarfjölda húsa eru verkefni til skoðunar hjá BSTR.
Frekari upplýsingar um einstök verkefni veitir Arngrímur Blöndahl, ritari Byggingarstaðlaráðs.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












