2. Ferli CE-merkingar
Huga ætti að CE-merkingu strax á hönnunarstigi vöru. CE-merking vöru gefur til kynna að varan uppfylli þær lágmarkskröfur um öryggi og heilsuvernd sem settar eru fram í tilteknum Evróputilskipunum, svokölluðum nýaðferðartilskipunum. Sá sem telur sig fullnægja öllum ákvæðum allra slíkra tilskipana, sem vöru hans varða, hefur leyfi til að auðkenna vöruna með stöfunum CE. CE-merking tiltekinnar vöru er þannig ekki eingöngu yfirlýsing um að varan sé í samræmi við ákveðna tilskipun heldur sérhverja nýaðferðartilskipun sem gæti átt við vöruna. Slík auðkenning er skilyrði fyrir markaðssetningu þeirra vöruflokka sem tilskipanirnar ná yfir. CE-merki má eingöngu nota til að gefa til kynna samræmi við nýaðferðartilskipanir en ekki eldri tæknilegar tilskipanir sem eru enn í gildi.
Til að uppfylla kröfur tilskipana ætti framleiðandi að:
- Finna út hvaða tilskipun eða tilskipanir eiga við
- Gera áætlun um framgang CE-merkingarinnar
- Finna út hvaða samhæfðu staðlar eiga við
- Ákveða hvernig eigi að tryggja að kröfur í stöðlum séu uppfylltar
- Ganga úr skugga um að varan uppfylli tilskipun með því að notast við virkt verklag, fyrirliggjandi gögn og prófunarniðurstöður
- Þegar aðstoð tilnefnds aðila á við, ganga úr skugga um að rétt verklag sé viðhaft til að tryggja samræmi við tilskipun og að aðgerðum í gæðamálum sé framfylgt.
- Tryggja að nauðsynleg þjálfun sé veitt
- Tilnefna starfsmann sem sér um að framfylgja því verklagi sem ákveðið hefur verið hvað varðar tilskipunina, samræmismat, tæknileg gögn og samræmisyfirlýsingu
- Gera samræmisyfirlýsingu sem inniheldur allar tilgreindar upplýsingar
- Ganga úr skugga um að framleiðsluferlið skili eingöngu vörum sem eru í samræmi við tæknileg gögn
- Setjið CE merkið á
Ef CE-merkið er stækkað eða minnkað skal halda sömu hlutföllum.
2.1. Aferð við að CE-merkja vöru >>
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













