Áhugavert efni
31.1.2008
ISO 9001:2000 Vinnubók fyrir þjónustufyrirtæki
Í vinnubókinni er sett fram aðferðafræði fyrir þjónustufyrirtæki sem taka ákvörðun um að innleiða gæðastjórnunarkerfi samkvæmt staðlinum ISO 9001 og e.t.v. sækja um vottun. Hjálpartækin í vinnubókinni (spurningar, gátlistar og leiðbeiningar um áætlanagerð) miðast við ákvarðanir og umræður sem þörf er á innan fyrirtækja til þess að innleiða árangursríka gæðastjórnun og tryggja að ferlið skili raunverulegum virðisauka. Hjálpartækin eru ætluð til þess að einfalda ferli innan fyrirtækjanna og gera þau skilvirkari, ekki til þess að koma á fyrirfram skilgreindu gæðakerfi.
Vinnubókinni er skipt niður í átta meginkafla, eins og lýst er hér að neðan, en einnig eru í bókinni viðaukar til frekari upplýsingar.
1. Notkun bókarinnar
2. ISO 9001:2000 – samantekt
3. Að taka ákvörðun
4. Nálgunin skipulögð
5. Hönnun gæðastjórnunarkerfisins
6. Skjalastjórnun
7. Að öðlast vottun
8. Að vottun lokinni
Hver kafli er settur fram í formi spurninga og æfinga sem notendum er ætlað að vinna sjálfir úr. Í upphafi hvers kafla er gefin hugmynd um tímann sem að jafnaði þarf að verja til þeirra mála sem rædd eru í kaflanum og hverjir þurfi (að lágmarki) að koma að málum. Æfingar í hverjum kafla eru ætlaðar til þess að ná fram áþreifanlegum niðurstöðum sem skila fyrirtækinu áfram í vottunarferlinu.
Vinnubókin tekur mið af þeim breytingum sem gerðar voru á ISO 9000 stöðlunum og leiðbeiningunum árið 2000, en hún er byggð upp þannig að hún verði áfram gagnleg þótt breytingar verði.
Hægt er að sjá sýnishorn af bókinni áður en þú pantar:
SÝNISHORN: ISO 9001:2000 Vinnubók ( pdf, 114 kb )
NÁMSKEIÐ
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði uppbygging og notkun
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.













