Áhugavert efni
5.6.2007
ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn
Með bókinni geta fyrirtæki notið leiðsagnar manna sem áttu stærstan þátt í gerð ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna og gerst þekkja hvernig taka á upp gæðastjórnunarkerfi byggt á ISO 9001:2000.
Bókin er ómetanlegt stuðningsefni við kjarnastaðlana fjóra í ISO 9000 röðinni; ISO 9000, 9001, 9004 og 19011.
Meginkaflar bókarinnar:
Gæðastjórnunarkerfi
Í kaflanum er að finna almennar upplýsingar um gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001.
Hvernig á að byrja
Kaflinn geymir hagnýtar ráðleggingar varðandi þá kosti sem fyrirtæki eiga ef ætlunin er að taka upp gæðastjórnunarkerfi.
Leiðsögn um ISO 9001
Þessi kafli er stærsti hluti handbókarinnar. Hér er að finna meginmálið úr ISO 9001 staðlinum sjálfum. Jafnframt er leiðsögn um efnið til að auka skilning á kröfunum, ásamt dæmum og tillögum um hvernig megi uppfylla kröfurnar.
Bókin er 183 síður og kostar 4.505 kr. með vsk. Hana má panta hér og nú. ATH. sendingarkostnaður ekki innifalinn.
ATHUGIÐ: Fyrirtæki sem panta 10 eintök eða fleiri fá 10% afslátt, sem reiknast þegar pöntunin er afgreidd.
Sýnishorn (83 K)
Handbók: ISO 9001 fyrir lítil fyrirtæki - Leiðsögn á 4.505,-kr.
Innskráning
Finna og panta staðal
Hér má finna og panta alla gildandi íslenska staðla, evrópska staðla og frumvörp að íslenskum og evrópskum stöðlum.
Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag.












